Morgunn - 01.06.1924, Síða 91
M 0 R G U N N
85
fyrirbrigöi sambandsástandsins og þær sérstöku persónur, sem
þar ltoma fram, þá fara skýringar hans að verða í meira lagi
ósennilegar. Hann hugsar sjer, aS klofningur úr sálarlífi mið-
ilsins sameinist klofningum úr sálarlífi fundarmanna eða ein-
hverra annara manna. Með þeim hætti myndist ný persóna,
sú er geri vart við sig í sambandsástandinu. Bn af því að
miðillinn og fundarmenn þrái að lifa eftir dauðann, þá flytj-
ist sú ósk meö sálarklofningunum, og nýja persónan, sem
myndist af þeim klofningum, reyni því að sanna það, að líf
sé til eftir dauðann.
Óhugsandi er mér, að noMíur maður, sem miMa reynslu
hefir í þessum efnum, fallist á slíka skýring. — En þeim,
sem lítið eða ekkert þekkja fyrirbrigðin af eiginni reynd, þyk-
ir gaman að hlusta á slíkar tilgátur, einlrum þegar jafn-
mælskur maður og andríkur eins og dr. Mackenzie setur þær
fram. Allir fanst mér hljóta að laðast að þessum ástúðlega
manni, með því að líka áhugi hans á rannsóknunum er 'auð-
sær. Þegar hann hitnaði dálítið, lagði einhvem ljóma af hon-
um. Ekki kvaðst hann vera efnishyggjumaður, né heldur trúa
á algeran dauða, heldur „relatívan" dauða; sálin mundi eft-
ir líkamsdauðann ganga upp í hærri „polypsykisma11 (þ. e.
hópsál)
6. Síðastur þennan dag talaði dr. Brugmans frá Hol-
landi. Flutti hann erindi um merMlegar framhaMstilraunir,
sem gerðar hafa verið um hugsanaflutning. Ilafa áhöM Grane-
walds, hins þýzka rannsóknara, verið notuð við tilraunirnar
og hefir tekist að sanna, aS sérstaMr rafmagnsstraumar fara
um líkama miðilsins, er breyting verður á meðvitundarlífinu
og það færist nær vöku-ástandi. Væri honum t. d. skipað að
reikna, sýndi áhaldið, að rafmagnsstraumur fór í gegnum
hann. Ef miðillinn seig aftur á móti í dýpra ástand, varö
„passívari", sýndi áhaldið straum í gagnstæða átt. 1 því
ástandinu varð miðillinn næmur fyrir hugskeytum.
Föstudagurinn 31. ágúst var enski dagurinn, og voru
ræðumenn þeir, sem hér segir:
1. Hr. Eric Dingwall, aðalrannsóknamaður enska sálar-
L