Morgunn - 01.12.1971, Page 22
100
MORGUNN
efablandinn andlegur svefn, og allt innra trúarlíf fyrirlitið og
smánað. Dómur erkibiskupsins Leightons í Lundúnum um
ástandið í þessum efnum var, að kirkjan væri eins og fagur-
lega skreytt beinagrind, sem yfirgefin væri af andanum, - og
þótti það vera sögulegur sannleikur þess tíma. f Þýzkalandi
rikti almennt trúleysi og efi, svo að jafnvel hinir trúuðu er
vildu verja trúna, þorðu varla að láta skoðanir sínar opinber-
lega í ljós. Þetta ástand stafaði þó ekki af því, að trúin væri
orðin útlæg, heldur af því, að hún var orðin andlaus og köld
ytri siðakenning og lituð, einkum af Calvinismanum, og Biblí-
an hroðvirknislega túlkuð, út frá blákaldri bókstafskenningu,
án skilnings á innri anda hennar. — Þekkingin á hinu andlega
ríki og nærveru Guðs var því viðs fjarri.“
Álirif á íslenzkt trúarlíf?
Opinberanir Swedenborgs um guðsríkið, kenningar Heilagr-
ar Ritningar og túlkanir hans á henni, ásamt útskýringum
hans á lífinu i ljósi hinnar geysi frjóu og víðtæku vísindaþekk-
ingar hans, er að finna í aðgengilegustum búningi og fram-
setningu í bók hans er nefnist á ensku Divine Love and Wis-
dom. — Fyrir skömmu rakst ég á það, mér til undrunar, að bók
þessi hefur verið þýdd á íslenzku fyrir 100 árum. Var það gert
af cand. theol. Jóni A. Hjaltalín, er síðar varð skólameistari
Möðruvallaskóla, en hann þýddi auk þess 20 árum síðar tvær
bækur eftir hann til viðbótar. — Sýnir þetta nokkuð hve áhrif
Swedenborgs hafa verið víðtæk. — Þýðing þessara bóka ber
órækt vitni um hverju ástfóstri þessi merki maður hefur tekið