Morgunn - 01.12.1971, Blaðsíða 26
104
MORGUNN
Ejnisheimurinn og hinir andlegu heimar — spegilmynd.
Þrátt fyrir það þótt efnisheimurinn og heimur andans
séu tengdir og náskyldir á grundvelli samstæðra og hlið-
stæðra grunnefna, lögmála og krafta, þá eru þeir fullkom-
lega aðgreindir. Heimur andans er frummyndin og þannig
orsakandi, en efnisheimurinn er eftirmynd hans og eins konar
hermiveruleiki eða spegilmynd hins andlega heims. — Al-
heimurinn geymir þannig mörg aðskilin lífssvið, æðrí og fin-
gerðari eða lægri og grófgerðari. öll lífssvið eru algjörlega
raunveruleg eða efnisleg fyrir íbúa þeirra hvers um sig, en
ósýnileg eða óskynjanleg þeim, er tilheyra öðrum. Þrátt fyrir
innri skyldleika, er engin bein tenging eða samband milli þess-
ara lífssviða, en aðeins tilsvörun og hliðstæður í formi og fyrir-
hærum, þar sem hin grófari eða ytri lífssvið eru eins og spegil-
mynd hins innra eða næsta fyrir ofan, en þó í öllum efnum
ófullkomnari. — Swedenborg skilgreinir þessi atriði frekar
með því að gera grein fyrir tvennskonar stigskiptingu sem lög-
máli alls veruleika; annars vegar þrepskiptingu, þar sem eng-
in tengsl eru á milli, hins vegar afliðandi stigbreytingu, frá
hinu efsta til hins neðsta og öfugt, - t. d. eins og milli skærs
ihccóÁv
ljóss og stigdvinandi, þar til náð er rökkri og að siðustu myrkri;
frá hita til kulda, frá grófgerðu til fíngerðara, frá þéttara til
þynnra og hærra til lægra. — Aðgreind stigskipting er hins
vegar eins og hæðir í húsi; hið fremsta, miðja og hið aftasta,
mismunandi jarðlög, eða eins og hugmynd, framkvæmd og af-
leiðingar, o. s. frv. — Enn frekara dæmi um samfellda stig-
breytingu er bjart ljós, sem með hækkandi öldutíðni getur far-
ið upp fyrir hin sýnilegu mörk, og verður þá ósýnilegt eða sem