Morgunn - 01.12.1971, Page 28
106
MORGUNN
svið segir Swedenborg frá því, að hann hafi verið leiddur að
voldugu geislandi fögru musteri. Hafi hann séð skrifað á hlið
musteris þessa leiftrandi letri: Nú leyfist aS meðtaka leynd-
ardóma trúarinnar fyrir skilning skynseminnar. — Hann
leggur á það áherzlu, að samkvæmt æðri útlistingu, sé trú án
skilnings þversögn; trú sé útilokuð þar sem skilningur og skyn-
semi séu sniðgengin. — Þá geti og hvorki vísindi né hugsun,
ein út af fyrir sig eða sameinuð, leitt oss að raunhæfum lífs-
spekilegum eða trúarlegum niðurstöðum. — Til sé þeim æðri
vitundarhæfileiki, sem hafi verið gróflega vanmetinn af lær-
dóm smönnum og heimspekingum, en sem beri að skipa verð-
skuldaðan og æðri sess, innsæishæfileiki mannsins, sem er hið
innra ljós. — Hugurinn, segir Swedenborg, getur séð sannleika
eða staðreyndir beint, á sama máta eins og hann geti kynnzt
þeim fyrir rannsókn og ígrundun. — Á þessari innri sjón bygg-
ist öll upplýst trú, sem því aðeins er raunhæf að hún sjái sann-
leikann sjálfan í skýru ljósi og geti skilið hann og gripið með
ljósum hætti hið innra. — Áður en Swedenborg fékk uppljóm-
unina trúði hann samkvæmt bókstafnum og gerði ekki kröfu
til að geta skilið allt sem stóð í Ritningunni, eins og eftir breyt-
inguna sem kom með vitrununum. Hins vegar virðist viðleitni
hans í vísindalegum efnum alla tíð frá upphafi hafa beinzt að