Morgunn - 01.12.1971, Page 79
ELÍNBORG ÁTTRÆÐ
STUTT VTÐTAL
Þann 12. nóvember 1971 varð einhver ötulasti stuðnings-
maður islenzkra sálarrannsókna, frú Elínborg Lárusdóttir, rit-
höfundur, áttræð. Þrátt fyrir það, þótt hún árum saman hafi
átt við heilsuleysi að stríða, þá hefur ekkert getað bugað and-
legan styrk þessarar gáfuðu konu. Þegar á allt er litið eru af-
köst hennar sem rithöfundar ótrúlega mikil. Hvorki meira né
minna en þrjátíu bækur. Auk þess hefur hún annazt útgáfu
tveggja bók fyrir skáldskvstur sínar: Hillingalönd, smásagna-
safn eftir Guðrúnu Helgu Jónsdóttur frá Vesturheimi og
Kvœði eftir Elínu Sigurðardóttur. Síðarnefndu bókina gaf frú
Elínborg út ásamt frú Maren Pétursdóttur frá Engey. Elín Sig-
urðardóttir átti við mikið mótlæti að stríða í lífinu, því hún var
veik i þrjátíu ár.
Frú Elínborg er löngu þjóðkunnur rithöfundur og njóta
bækur hennar mikilla vinsælda.
í tilefni áttræðisafmælisins skrapp ritstjóri Morguns heim
til frú Elínborgar og lagði fyrir hana nokkrar spumingar.
„Við vitmn að sjö af bókum þínum fjalla um dulræn efni, og
er ljóst af bók þinni Dulræn reynsla mín, að þú býrð sjálf yfir
nokkurri ófreskigáfu. Hvenær varðstu fyrst vör við það?“
„Ég var dálítið skyggn, þegar ég var barn og „heyrði“ líka.
En ég var hrædd við þetta og hélt að það væri ofskynjanir“.
„Hefurðu alla tíð verið sannfærð um, að samband við fram-
liðna væri mögulegt?"
„Nei, síður en svo! Ég var ákaflega andvíg öllum tilraunum
í þá átt. Taldi slíkt stórhættulegt kukl og blátt áfram óguðlegt“.
„En hvað breytti þá afstöðu þinni?“
„Það var að kynnast ótvíræðum ófreskmn eiginleigum mið-