Morgunn - 01.12.1971, Qupperneq 83
HUGBOÐ OG FRAMSÝN
161
og kasta upp vatni. Var síðar sóttur læknir, sem að lokinni
rannsókn lýst þvi yfir, að barnið væri úr allri hættu. En hann
bætti því við, að hefði hjálpin borizt nokkrum mínútum síðar,
hefði það að öllum likindum verið um seinan.
Þetta er gott dæmi mn það, sem svo vel hefur verið lýst
á íslenzku með orðinu hugboð. Ekki vitum við hvaða öfl i okk-
ur gera þetta kleift, en enginn vafi er hins vegar á því, að við
íhugun muni koma i ljós, að flestir kannist við að hafa ein-
hvern tíma á ævinni fengið slík hugboð, þótt ekki hafi þau ef
til vill orðið til þess að bjarga mannslífi.
Þetta minnir okkur á, hve lítið við vitum um hulda heima
sálarinnar og þau ókunnu öfl, sem í okkur búa; eru vísinda-
menn i sálarfræðum hér ekki undan skildir.
Síðdegis fimmtudaginn 19. nóvember s. 1. sat ég við kaffi-
sopa í einu veitingahúsi Reykjavíkur og ræddi við kunningja
minn ýmis dulfræðileg efni, en hann er mikill áhugamaður
um þau mál eins og ég. Skiptumst við á skoðunum, og tíminn
leið fljótt. Atriði, sem hann drap á, minnti mig sterklega á
merkan enskan dulfræðing og kenningar hans, og hugsaði ég
fast um nafn hans. En áður en ég gæti nefnt það, minntist
kunningi minn á það og tók að ræða þessar kenningar frá
svipuðum sjónarhóli og ég hafði hugsað mér. Hafði ég sent
honum hugsunina? Eða las hann hana úr huga mér? Ekki
treystist ég til að svara því með neinni vissu, þó að það hins
vegar hafi lengi verið trú mín, að maðurinn sé í senn útvarps-
stöð og viðtæki. Margar vel staðfestar og merkilegar frásagnir
um flutning hugsana á milli manna renna stoðum undir þessa
skoðun. Er ekki ósennilegt, að eftir eigi að koma i ljós ða orðin
„tilviljun“ og „heppni“ séu helzt til frjálslega notuð um það,
sem fólk ekki skilur.
Ég ætla að nefna hér annað dæmi um einkennilegt hugboð,
sem einnig gerðist hér á landi fyrir um það bil tveim árum.
Eins og í fyrri frásögninni starfaði maður sá, sem hér kemur
við sögu, hjá fyrirtæki í Reykjavík, en það rekur ýmis konar
starfsemi viðsvegar úti um land. Starf þessa manns lá meðal
annars í því að fara á vegum fyrirtækisins reglulega í eftirlits-
11