Morgunn


Morgunn - 01.12.1971, Page 92

Morgunn - 01.12.1971, Page 92
170 MORGTJNN eftir þetta fór Sigríður að Sviðholti með bróður sínum, er hann fór í skóla. Var hún þar urn veturinn við nám. Þann vetur lét Guðríður það á sér skiljast, að hún byggist við að eiga skammt eftir ólifað. Og á laugardaginn fyrir páska fór hún í sparifötin og sagði að sín mundi verða vitjað í dag. Það var svo að skilja, að hún bjóst við að deyja um daginn. En er degi hallaði, og hún var heil heilsu, sagði hún eins og við sjálfa sig: „Það verð- ur þá ekki ég i þetta sinn; það verður annað hvort bamanna minna.“ Þann dag drukknaði Steindór sonur hennar í Skerja- firði. Var sóknarprestinmn séra Sigurði Thorarensen í Hraun- gerði tilkynnt lát hans, en hann átti að segja foreldrum hans. Þá er séra Sigurður kom að Oddgeirshólum þess erindis, var Guðríður ekki við bæinn, hún hafði gengið á leið með vinkonu sinni. Var sent eftir henni og sagt að prestur væri kominn. „Ég veit erindi hans,“ segir hún og fer heim. Prestur kom á móti henni á hlaðinu og vildi heilsa henni. En hún varð fyrri til máls og spurði: „Hvort bamanna minna er dáið?“ Hann sagði það væri Steindór. „Ég bjóst fremur við,“ sagði hún, „að það væri Sigríður. Hún var heilsulítil. En það vissi ég, að ég var búin að missa annað hvort þeirra“. Stefán maður Guðríðar átti reiðhest hvítan að lit, fyrirtaks gæðing. Þótti honum mjög vænt um hann, og Guðríði eigi síð- ur. Þar kom, að honum þótti nauðsynlegt að hlífa Hvítingi við og við. Samdi hann því við Rangæing einn um að selja sér efnilegan fola og færa sér hann á tilteknum tíma. Þennan samning gerði Stefán án vitundar Guðríðar. Mun hann hafa hitt Rangæinginn á ferðalagi, því annars var hami vanur að ráðgast við konu sína um hvaðeina. Þegar hann sagði henni frá þessnm samningi, varð henni bilt við og bað hann að rifta samningnum; sér segði þunglega hugur tun þessi kaup. Hann vildi ekki fyrir nokkum mun ganga á bak orða sinna, og fór hann ekki að ráðum hennar í þessu. En þetta var hið eina, sem hann nokkm sinni gerði henni á móti skapi. Daginn sem von var á folanum, hlakkaði Stefán mjög til að sjá hann og lét í ljós óvenjulegt bráðlæti. Folinn kom á réttum tíma. Hann var mjög fallegur, hvítur að lit, nema eymn og höfuðið að of-
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140

x

Morgunn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunn
https://timarit.is/publication/668

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.