Morgunn - 01.12.1971, Qupperneq 101
RITST J ÓRARABB
179
félagsmenn. Hefur því orðið að ráði að frúin helgi sig fram-
vegis miðilsstarfinu, og starfi þannig reglubundið fyrir félagið
frá því i byrjun næsta árs. — Munu fundirnir hefjast upp úr
áramótum, og heldur hún þá fundi fjóra daga i viku fyrir fé-
lagsmenn. - Verður þannig mögulegt nú að veita þeim kost á
miðilsfundum á vegum félagsins, og er það forráðamönnum
mikið gleðiefni, að þetta skuli nú loks hafa tekizt, þar sem það
hefur að sjálfsögðu ekki verið vanzalaust með öllu fyrir félag-
ið, að geta ekki boðið félögum sínum upp á fundi hjá innlend-
um miðlum, þótt hjálp og aðstoð erlendra miðla, er hafa komið
hingað í stuttar lieimsóknir, hafi bætt þar nokkuð úr.
Verður tekið við fundarbeiðnum i síma félagsins 18130 alla
fimmtudaga kl. 17.00—18.30, og þótt sá háttur hafi verið á
hafður fyrr, sökum takmarkaðrar starfsemi, að taka ekki við
pöntunum nema fjórar vikur fram í tímann, hefur nú verið
ákveðið, að tekið verði við öllum pöntunum þegar í stað, en
siðar látið vita um fundartíma, ef ekki er mögulegt að ákveða
tímann þá strax. - Aðgöngumiðar verða afgreiddir í skrifstofu
SRFÍ að Garðastræti 8, á föstudögum einnig kl. 17.00 til 18.30.
- Félagsmenn athugi vinsamlegast, að ekki er mögulegt að
taka við pöntunum á þeim tíma, sem aðgöngumiðar eru af-
greiddir, þar sem slíkt fellur ekki saman vegna starfsaðstöðu. —
Er vonast eftir góðri samvinnu og skilningi félagsmanna í
sambandi við þetta atriði.
Það skal tekið fram, að fólk getur gerzt annað hvort dags-
félagar í SRFl til að geta fengið fundi, eða orðið fullgildir fé-
lagsmenn eftir því sem óskað er, og skal þessa getið, þegar
fundir eru bókaðir.
Að siðustu skal þess geta, að félagið hefur átt þvi láni að
fagna, að Hafsteinn Rjörnsson, miðill, hefur haldið skyggni-
lýsingar fyrir félagsmenn og gesti öðru hvoru. — Hafsteinn
hefur, eins og kunnugt er, haldið fjölmarga skyggnilýsinga-
fundi á undanfömum árum; hafa þeir vakið óskipta athygli
meðal almennings, og orðið málefninu hin mesta lyftastöng.
- f byrjun nóvember s.l. hélt Hafsteinn Rjörnsson einn slíkan