Morgunn - 01.12.1971, Page 103
ÆVAR R. K.VARAN:
HVERT LIGGUR LEIÐIN?
Ellnborg Lárusdóttir.
Otgefandi: SKUGGSJÁ, 1970.
Það er mikill fengur að þessari síðustu bók hinnar öldnu en
ötulu skáldskonu. Hér lýsir hún persónulegum kynnum sinum
af fjórum þjóðkunnum miðlrnn og samstarfi við þá. Tveim
þeirra hefur hún að vísu gert skil: Andrési Böðvarssyni í hók-
inni Úr dagbók miðilsins, 1944, og hinum mikla miðli Hafsteini
Björnssyni í tveim bókiun árin 1946 og 1952.
Kaflinn um Andrés Böðvarsson er sérstaklega athygli verður,
þvi hann greinir frá hinni afdrifariku liugarfarsbreytingu
gagnvart spíritismanum sem verðtn- með frú Elínborgu, þegar
hún kynnist ófreskigáfu þessa merkilega miðils. Það var upp-
haflega sameiginlegt bæði höfundi og þeim sem frá er sagt, að
þau höfðu megna andúð á tilraunum sem lutu að dulrænum
efnum.
Andrés, sem lézt þann 29. janúar 1931, var gæddur skyggni-
gáfu í ríkum mæli og sá atburði gerast í fjarska. Virðist hann
hafa komizt of seint undir hendur þeirra, sem með hæfileika
hans kunnu að fara, því hann var orðinn veikur og dvaldist
langdvölum á sjúkrahúsum. Skilningsleysi og andúð samferða-
mannanna á dulrænum málum kom í veg fyrir að hann lifði
því lífi, sem bezt hentaði manni með hans hæfileika.
Ekki var þessi undarlegi maður þó öllum heillum horfinn.
Bar tvennt til þess. Hann hafði valið sér að lífsförunaut göfuga
konu þar sem var Salvör Ingimundardóttir. Hún reyndist