Morgunn


Morgunn - 01.06.1981, Page 35

Morgunn - 01.06.1981, Page 35
FJARHIUF OG FYRIRBOÐAR 33 steini Þorsteinssyni lífefnafræðingi fyrir nokkrum árum. Þessi hugmynd byggist á samhæfðri hreyfingu heils skipulags efnis eða orku, - þannig, að hlutur gæti horfið á einum stað og myndast samtimis á öðrum. Þessi hugmynd grundvallast á því, að annars vegar rúm og hins vegar efni og orka séu tveir fasar sama fyrirbæris. Samhæfð hreyfing af þessu tagi krefðist þess, að allir hlutar viðkomandi skipulags hreyfðust samtímis á hliSstœ'San hátt og i sömu átt. Þessi hugmynd um samhæfða hreyfingu skirskotar bæði til fjarskynjunar og firðhræringa (ESP og PK). Varðandi áhrifamátt fjarhrifa almennt má svo bæta því við, að rannsóknir bandarísku vís- indamannanna VUman og Krippner benda eindregið til þess, að fjarhrifasamband geti orsakað drauma, - bæði við venju- legar aðstæður og tilraunaðstæður. FyrirbóSar. Hér er orðið notað í merkingunni að sjá eSa skynja óorðna atburði. Skylt þessu er að sjá aftur í fortiðina. Hér er um að ræða þau yfirskilvitlegu fyrirbæri, eins og þetta er oft kallað, sem margir eiga erfiðast með að sætta sig við. Kannske ekki furða, því hæfileiki af þessu tagi ber enga virðingu fyrir „tímans þunga nið“. Þetta er því mjög alvar- legt mál, svo háð sem við erum því að líta á tímann sem beina línu, er við öll mjökumst eftir með jöfnum hraða. Og ekki hvarflar það að okkur, að klukkurnar fari með rangt mál - þær, sem segja okkur hvenær matast skuli, hvort sem við erum svöng eða ekki og hvenær við eigum að fara í rúmið og hvenær vakna til starfa okkar, hvort sem við erum þreytt eða óþreytt, útsofin eða vansvefta. Þrátt fyrir þennan áhrifa- mátt klukkunnar og hinnar beinu, jöfnu tímalínu í okkar hversdagslegu veröld, hefur mönnum tekist að brjótast úr þessum viðjum og skyggnast inn í aðra heima: hinn smásæja heim öreindanna og veraldir himindjúpsins. Þessir heimar hafa opnað mönnum ný sjónarhorn og m. a. hefur timahug- takið ekki i'arið varhluta af því. Ein þessara nýju hugmynda byggir á fyrrnefndum tachionum eða hugsanlegum hliðstæð- um ögnum. Ef til eru agnir, sem hreyfast með meiri hraða en sem nemur hraða ljóssins, þá ferðast þær aftur á bak í 3

x

Morgunn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunn
https://timarit.is/publication/668

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.