Morgunn - 01.06.1981, Blaðsíða 52
BJÖRN FRANZSON:
NÝALDARKENNINGAR TlBETANS
Þegar ég hafði látið til leiðast að beiðni forystumanna
Lindarinnar að taka að mér að flytja hér stutt erindi og fór
að íhuga, um hvað það ætti helzt að fjalla, komst ég að þeirri
niðurstöðu, að ég myndi varla hafa á reiðum höndum efni,
sem betur væri við hæfi þessa félagsskapar en nýaldarkenn-
ingar Tíbetans. Til þess er fyrst sú ástæða, að kenningar
þessar verða án efa að teljast til hins merkasta, sem nú er
uppi á vettvangi dulspekinnar og hinna innri fræða, en hitt
er annað, að mér virðist sem kenningar þessar séu hvergi
nærri nógsamlega kunnar hér á landi.
'Ég verð reyndar að taka það fram, að í erindi sem þessu
eru ekki tiltök neinnar ítarlegrar greinargerðar eins og ljóst
má verða af því, að bækur Tibetans, sem kenningar þessar
hafa að geyma, eru einar nítján að tölu og sumar mörg hundr-
uð blaðsíður að stærð, ein meira að segja á annað þúsund
blaðsíður. Þetta er i raun og veru ritsafn, sem tekur 60-70
cm rúm i bókahillu. Hér getur því ekki orðið um annað að
ræða en að reyna að vekja athygli á bókum þessum og hvetja
menn til að kynna sér sjálfir eftir föngum. Bækumar eru
frumritaðar á ensku. Nokkrar þeirra hafa verið þýddar á
önnui- mál, svo sem þýzku, frönsku, hollenzku, itölsku og
spænsku, en engar, að ég hygg, á Norðurlandamál. Þó mun
von á einni íslenzkri þýðingu innan skamms og er hún gerð
af vorum ágæta félaga, Steinunni Briem.* Einnig er verið
að prenta íslenzka þýðingu á bæklingi eftir enskumælandi
*Sjá auglýsingu á kápu þessa heftis. Ritstj.