Morgunn


Morgunn - 01.06.1981, Page 93

Morgunn - 01.06.1981, Page 93
MINNING 91 Árið 1949 réðst Björgvin til starfa hjá Oliufélaginu Skelj- ungi. Gegndi hann jiar ábyrgðarstörfum. Hugur hans stóð þó jafnan til starfa i þágu sjávarútvegsins og árið 1968 réðst hann til starfa sem fulltrúi á skrifstofu Síldarútvegsnefndar í Reykjavík. Tók hann að sér eitt vanda- samasta verk skrifstofunnar, en það var að skipuleggja og hafa yfirumsjón með síldarsöltuninni og útflutningi síldarinnar til hinna ýmsu markaðslanda. Jafnframt stjórnaði hann inn- flutningi og dreifingu rekstrarvara vegna síldarsöltunarinnar. I öllum þessum störfum ávann Björgvin sér óskorað trausts allra samstarfsmanna og viðskiptavina nefndarinnar, enda má með sanni segja að hann hafi lagt sig allan fram til þess að leysa þessi ábyrgðarstörf sem bezt af hendi. Björgvin kynnti sér vel sölu- og markaðsmál síldarinnar og tók þátt í fjölda samningaviðræðna við erlenda síldarkaup- endur. Eitt síðasta verk hans á því sviði var þátttaka í við- ræðunefnd við Pólverja i Varsjá i byrjun september varðandi viðskiptasamning landanna. Það var skömmu eftir þá ferð, sem hinn alvarlegi sjúkdómur kom i ljós. 1 einkalífi var Björgvin mikill gæfumaður. Hann kvæntist árið 1950 skólasystur okkar Dagbjörlu Guðbrandsdóttur, mik- ilhæfri mannkostakonu. Þau eignuðust tvær dætur, Kristínu, bókavörð í Kópavogi, sem gift er Kára Kaaber, og Katrínu, sem stundar nám við Háskóla Islands. Nú þegar leiðir skiljast er margs að minnast. Björgvin Torfa- son var greindur maður og stjórnsamur. Hann var kröfu- harður við sjálfan sig og vann öll sín störf af einstakri vand- virkni. Hann hafði mikla ábyrgðartilfinningu og sterka rétt- lætiskennd. Og hjartað hafði hann svo sannarlega á réttum stað. í vinahópi var hann jafnan hrókur alls fagnaðar. Hans er sárt saknað af okkur öllum, sem áttum þvi láni að fagna að starfa með honum. Við hjónin þökkum órjúfanlega og trygga vináttu hans og flytjum öllum aðstandendum innilegar samúðarkveðjur. Gunnar Flóvenz.

x

Morgunn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunn
https://timarit.is/publication/668

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.