Uppeldi og menntun - 01.01.2010, Page 22

Uppeldi og menntun - 01.01.2010, Page 22
leiKSKÓlaStarf af SJÓnarHÓli foreldra Uppeldi og menntUn/icelandic JoUrnal of edUcation 19(1–2)/201022 Ein móðir lagði þetta til málanna aðspurð hvort hún vildi hafa meiri áhrif á starfið: „Það væri kannski allt í lagi að hafa, þú veist, blað eða eitthvað sem þú getur komið með einhverjar hugmyndir eða óskir. En svo er það þessa faglega fólks að fara eftir því og meta það.“ Foreldrar í einum leikskólanum skáru sig úr hinum að því leyti að þeir voru áhuga- samir um að hafa áhrif á ákvarðanatöku í leikskólanum. Nokkrum þeirra fannst að þeir hefðu lítið um starfið að segja og ekki væri hlustað á þá. Ein móðir sagði t.d. að foreldrum væri kynnt hvað væri á döfinni á foreldrafundum og þeir þá spurðir álits en ekki væri ljóst hvað gert væri með álit foreldranna í framhaldinu. Hún sagði í þessu samhengi: ,,Svo veit maður ekki hvort það er tekið mark á okkur, kannski er bara spurt og svo er þetta bara afgreitt.“ Jafnframt sagði þessi sama móðir: ,,Svo spyr maður kannski og þá er bara sagt að það séu ekki til peningar.“ Önnur móðir hafði lagt til að leikskólinn legði meira upp úr fjölmenningarlegu starfi. Hún sagðist oft hafa rætt þetta bæði á fundum og við leikskólastjóra en árangurs. ,,Þau hafa ekki hlustað á þetta og mér finnst það alveg stórskrýtið af því að þetta væri ekkert mál.“ Ein önnur móðir sagðist gjarnan vilja taka þátt í starfinu og kom með þá hugmynd að það væri sniðugt að foreldrar kæmu meira inn í leikskólastarfið og kynntu t.d. starf sitt fyrir börnunum. Starfsfólkið Í flestum hópunum ræddu foreldarnir um mikilvægi starfsfólksins og flestir þeirra létu í ljós ánægju sína með það þótt það væri ekki algilt. Foreldrunum fannst mikil- vægt að börnin fyndu til öryggis í leikskólanum og treystu starfsfólkinu og að það næði góðum tengslum við hvert einstakt barn. Ein móðirin sagði: „Gott starfsfólk með þægilegt viðmót er það mikilvægasta fyrir börnin og foreldrana.“ Margir foreldrar nefndu að þeim fyndist mjög mikilvægt að starfsfólkið væri vin- gjarnlegt, tæki vel á móti börnunum á morgnana og léti í ljósi að það væri ánægt með að sjá barnið þeirra. Í einum hópnum ræddu tvær mæður um þetta á þessa lund: Móðir I: … þá fannst mér alltaf ofsalega notalegt. Það var alveg sama hvenær á morgnana þú komst og sama hver var. Það var alltaf tekið vel á móti okkur, boðið góðan dag og svona tekið eftir því að barnið var mætt. Móðir II: Og svona á köldum vetrarmorgnum þá var hlýlegt – það er svona gott að fara út þegar þú skilur barnið þitt eftir og þú veist að því líður vel – það er einhver sem heilsar því og gefur því morgunmat og svona. Ein móðir nefndi sérstaklega hvað henni fyndist gott hvað starfsfólkið talaði fallega og með virðingu við börnin. Hún sagði: „Mér finnst alveg frábært, það er alltaf svo vel tekið á móti þeim og þau eru alltaf kvödd svo fallega.“ Önnur móðir hrósaði starfs- fólkinu fyrir hvað það tæki fljótt og vel á málum ef eitthvað kæmi upp á. Hún sagði: Mér fannst þær taka mjög vel á því. Minn [sonur] lenti í svona smá-aðkasti í haust. Þá voru svona tveir-þrír að leggja hann í svona vægt einelti. Mér fannst þær taka rosalega flott á því, fóstrurnar, þær einmitt töluðu við foreldrana líka. Hina foreldr- ana, sko, og þá var þetta bara búið bara um leið. Þeir voru góðir við hann eftir það.
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144
Page 145
Page 146
Page 147
Page 148
Page 149
Page 150
Page 151
Page 152
Page 153
Page 154
Page 155
Page 156
Page 157
Page 158
Page 159
Page 160
Page 161
Page 162
Page 163
Page 164
Page 165
Page 166
Page 167
Page 168
Page 169
Page 170
Page 171
Page 172
Page 173
Page 174
Page 175
Page 176
Page 177
Page 178
Page 179
Page 180
Page 181
Page 182
Page 183
Page 184
Page 185
Page 186
Page 187
Page 188
Page 189
Page 190
Page 191
Page 192
Page 193
Page 194
Page 195
Page 196
Page 197
Page 198
Page 199
Page 200
Page 201
Page 202
Page 203
Page 204
Page 205
Page 206
Page 207
Page 208
Page 209
Page 210
Page 211
Page 212
Page 213
Page 214
Page 215
Page 216
Page 217
Page 218
Page 219
Page 220

x

Uppeldi og menntun

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Uppeldi og menntun
https://timarit.is/publication/581

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.