Uppeldi og menntun - 01.01.2010, Blaðsíða 22
leiKSKÓlaStarf af SJÓnarHÓli foreldra
Uppeldi og menntUn/icelandic JoUrnal of edUcation 19(1–2)/201022
Ein móðir lagði þetta til málanna aðspurð hvort hún vildi hafa meiri áhrif á starfið:
„Það væri kannski allt í lagi að hafa, þú veist, blað eða eitthvað sem þú getur komið
með einhverjar hugmyndir eða óskir. En svo er það þessa faglega fólks að fara eftir
því og meta það.“
Foreldrar í einum leikskólanum skáru sig úr hinum að því leyti að þeir voru áhuga-
samir um að hafa áhrif á ákvarðanatöku í leikskólanum. Nokkrum þeirra fannst að
þeir hefðu lítið um starfið að segja og ekki væri hlustað á þá. Ein móðir sagði t.d.
að foreldrum væri kynnt hvað væri á döfinni á foreldrafundum og þeir þá spurðir
álits en ekki væri ljóst hvað gert væri með álit foreldranna í framhaldinu. Hún sagði
í þessu samhengi: ,,Svo veit maður ekki hvort það er tekið mark á okkur, kannski er
bara spurt og svo er þetta bara afgreitt.“ Jafnframt sagði þessi sama móðir: ,,Svo spyr
maður kannski og þá er bara sagt að það séu ekki til peningar.“ Önnur móðir hafði
lagt til að leikskólinn legði meira upp úr fjölmenningarlegu starfi. Hún sagðist oft hafa
rætt þetta bæði á fundum og við leikskólastjóra en árangurs. ,,Þau hafa ekki hlustað á
þetta og mér finnst það alveg stórskrýtið af því að þetta væri ekkert mál.“ Ein önnur
móðir sagðist gjarnan vilja taka þátt í starfinu og kom með þá hugmynd að það væri
sniðugt að foreldrar kæmu meira inn í leikskólastarfið og kynntu t.d. starf sitt fyrir
börnunum.
Starfsfólkið
Í flestum hópunum ræddu foreldarnir um mikilvægi starfsfólksins og flestir þeirra
létu í ljós ánægju sína með það þótt það væri ekki algilt. Foreldrunum fannst mikil-
vægt að börnin fyndu til öryggis í leikskólanum og treystu starfsfólkinu og að það
næði góðum tengslum við hvert einstakt barn. Ein móðirin sagði: „Gott starfsfólk með
þægilegt viðmót er það mikilvægasta fyrir börnin og foreldrana.“
Margir foreldrar nefndu að þeim fyndist mjög mikilvægt að starfsfólkið væri vin-
gjarnlegt, tæki vel á móti börnunum á morgnana og léti í ljósi að það væri ánægt með
að sjá barnið þeirra. Í einum hópnum ræddu tvær mæður um þetta á þessa lund:
Móðir I: … þá fannst mér alltaf ofsalega notalegt. Það var alveg sama hvenær á
morgnana þú komst og sama hver var. Það var alltaf tekið vel á móti okkur, boðið
góðan dag og svona tekið eftir því að barnið var mætt.
Móðir II: Og svona á köldum vetrarmorgnum þá var hlýlegt – það er svona gott að
fara út þegar þú skilur barnið þitt eftir og þú veist að því líður vel – það er einhver
sem heilsar því og gefur því morgunmat og svona.
Ein móðir nefndi sérstaklega hvað henni fyndist gott hvað starfsfólkið talaði fallega
og með virðingu við börnin. Hún sagði: „Mér finnst alveg frábært, það er alltaf svo vel
tekið á móti þeim og þau eru alltaf kvödd svo fallega.“ Önnur móðir hrósaði starfs-
fólkinu fyrir hvað það tæki fljótt og vel á málum ef eitthvað kæmi upp á. Hún sagði:
Mér fannst þær taka mjög vel á því. Minn [sonur] lenti í svona smá-aðkasti í haust.
Þá voru svona tveir-þrír að leggja hann í svona vægt einelti. Mér fannst þær taka
rosalega flott á því, fóstrurnar, þær einmitt töluðu við foreldrana líka. Hina foreldr-
ana, sko, og þá var þetta bara búið bara um leið. Þeir voru góðir við hann eftir það.