Uppeldi og menntun - 01.01.2010, Page 85
Uppeldi og menntUn/icelandic JoUrnal of edUcation 19(1–2)/2010 85
m a r Í a S t e i n g r Í m S d Ót t i r
lokaorð
Í þessari grein hefur verið leitast við að varpa ljósi á reynslu grunnskólakennara af
fyrstu fimm árunum í starfi og hvernig aukin starfsreynsla þroskar þá.
Niðurstöður úr rannsókninni styrkja þær vísbendingar sem áður hafa komið fram
(Lilja M. Jónsdóttir, 2005; María Steingrímsdóttir, 2005) að íslenskir grunnskólakenn-
arar eigi margt ólært þegar námi lýkur og á vettvang starfsins er komið. Enn fremur
að ákveðinn aðlögunartíma þurfi til að læra hvað felst í þessu flókna og margbrotna
starfi. Mikilvægt hlýtur því að vera að leita leiða til þess að efla markvissan stuðning
við kennara fyrstu starfsárin í þeim tilgangi að þeir öðlist fyrr hæfni. Sá stuðningur
ætti að ná til félagslegra, hagnýtra og faglegra þátta starfsins.
Niðurstöðurnar gefa einnig til kynna að eftir fimm ára kennslureynslu felist þroski
kennaranna í auknu öryggi og sjálfstrausti hvað varðar framkvæmd og skipulag
kennslustunda og samskipti við nemendur, samkennara og foreldra. Þeir vilja leggja
sig fram um að koma til móts við nemendur bæði í námi og félagslega og eru tilbúnir
að leita nýrra leiða til að auka við þekkingu sína og gera betur. Í því samhengi kalla þeir
eftir meiri endurgjöf, hvatningu og virkara samstarfi við stjórnendur, en fálæti þeirra í
þessum efnum telja þeir að geti jafnvel dregið úr áhuga sínum og starfsánægju.
Um leið og kennarar ná fótfestu í skólasamfélaginu vex samstarf við samkennara.
Samstarf við þá virðist hvað mikilvægast fyrir kennarana þegar þeir líta til stuðnings
og lærdóms, þaðan fái þeir hvatningu og hrós, við þá geti þeir talað um fagleg sem
hagnýt mál, í samstarfi við þá þroskist þeir í starfi.
Þær niðurstöður sem hér hafa verið settar fram eru mjög samhljóða því áliti og
stefnu sem fram kemur í nýrri skýrslu frá Evrópusambandinu og fjallar um aðlögun
nýrra kennara að kennarastarfinu. Í skýrslunni er dregið fram mikilvægi markviss
stuðnings fyrir kennara og þá sérstaklega við upphaf starfsferils þeirra og fyrstu árin í
starfi. Fram kemur að mikilvægt sé að nýta þær bjargir sem fyrir hendi eru í skólunum
í þeim tilgangi (European Commission, 2010).
Miðað við þær upplýsingar sem fást úr þessari rannsókn og fjallað hefur verið
um hér að framan er mikilvægt að lögð verði áhersla á að efla samvinnu kennara og
félagastuðning innan skólanna svo að styðja megi kennarana og gefa þeim þannig
tækifæri til að fá endurgjöf á eigin starfshætti og stuðla að faglegum samræðum sem
leiða til aukins starfsþroska þeirra. Þannig vinnubrögð ættu að styrkja fagmennsku
þeirra og fleyta fleiri kennurum til þess þroska að verða afburðahæfir kennarar sem
hafa þarfir nemenda í fyrirrúmi.
1 Teaching and Learning International Study.