Uppeldi og menntun - 01.01.2010, Page 135

Uppeldi og menntun - 01.01.2010, Page 135
Uppeldi og menntUn/icelandic JoUrnal of edUcation 19(1–2)/2010 135 rannveig traUStadÓttir, Hanna BJörg SigUr JÓnSdÓttir og Helgi þÓr gUnnarSSon er að skilningur á barnæskunni í nútímasamfélögum er undir áhrifum frá kenningum þroskasálfræðinnar. Kenningar áhrifamikilla barnasálfræðinga, svo sem Piaget (1959) og Erikson (1968), hafa skapað þann skilning að þroski barna felist í röð mælanlegra þrepa í átt til fullorðinsára. Kenningar þessara frumkvöðla hafa verið gagnrýndar fyrir að gera ekki nægilega grein fyrir áhrifum félagslegs og menningarlegs umhverfis á þroska barna. Nýir kennismiðir, svo sem Bronfenbrenner, hafa kvatt sér hljóðs og lagt áherslu á að manneskjur þroskist í flóknu kerfi tengsla og samskipta við fólk og um- hverfi (Bronfenbrenner og Morris, 1998). Þrátt fyrir það er skilningur hinna klassísku þroskakenninga lífseigur, en hann hefur gjarnan í för með sér ósveigjanleg viðmið um hvað það er að vera „eðlilegt“ barn. Þessar kenningar hafa skilgreint mörk þess sem er talið „frávik” frá hinu eðlilega viðmiði og þar með lagt grunn að því að skilgreina fötluð börn sem „óeðlileg“. ýmsir fræðimenn (sjá t.d. Bloch, 2000; Priestley, 2003) benda á að orðræðan um eðlilegan þroskaferil barna og hið eðlilega lífshlaup hafi haft djúpstæð áhrif á líf fatlaðra barna og varpi meðal annars ljósi á það af hverju þau eru iðulega skilgreind sem félagsleg vandamál í samfélögum nútímans. ýmsir fræðimenn hafa orðið til þess að gagnrýna þessar hefðbundnu aðferðir til að skilja lífshlaupið og benda á að hún sé undir sterkum áhrifum frá líffræði (Leisering og Walker, 1998). Þrátt fyrir það telja þeir hugtakið lífshlaup vera gagnlegt til að skilja þá félagslegu skipan sem er á lífi okkar. Í rannsókninni Börn, ungmenni og fötlun leitum við í smiðju til gagnrýnna kenninga um lífshlaupið, ekki síst þeirra sem gagnrýna viðmið hins eðlilega þroskaferils sem flokkar börn í eðlileg og afbrigðileg. rannsóknin Markmið rannsóknarinnar Börn, ungmenni og fötlun er að afla þekkingar á sjónarhorni og skilningi barna og ungmenna á þeim þáttum sem skipta þau mestu máli í daglegu lífi. Rannsóknin í heild er viðamikil og nær til breiðs aldurshóps. Þátttakendur voru fötluð börn á aldrinum 6–15 ára, ungmenni á aldrinum 16–20 ára og fullorðið fólk sem sagði frá barnæsku sinni, uppvexti og reynslunni af því að alast upp með fötlun. Rannsóknin fór fram á árunum 2006–2010. Í þessari grein er einungis fjallað um hluta þessarar stóru rannsóknar en hann byggist á gögnum sem safnað var meðal tólf hreyfihamlaðra ungmenna á aldrinum 18–24 ára. Við rannsóknina var beitt eigindlegum aðferðum (Creswell, 2007; Taylor og Bogdan, 1998) en þær henta vel þegar leitað er eftir sjónarhornum þeirra sem taka þátt í rannsókninni og þeim skilningi sem þátttakendur leggja í líf sitt og aðstæður (Bogdan og Biklen, 1998). Gagnasöfnun fór fram með opnum einstaklingsviðtölum og rýnihópaviðtölum (Kvale, 1996). Auk þess voru gerðar þátttökuathuganir við ólíkar aðstæður í lífi ungmennanna. Þátttakendur voru allir hreyfihamlaðir en skerðingar þeirra voru með afar ólíkum hætti, sum áttu tiltölulega auðvelt með gang og aðrar hreyfingar, önnur voru meira hreyfihömluð og notuðu hjólastól. Þátttakendur voru valdir með aðstoð samtaka fatlaðs fólks; auk þess bentu þátttakendur okkur á önnur fötluð ungmenni. Við nýttum okkur einnig persónuleg tengsl til að finna þátttakendur. Flestir sem leitað var til samþykktu þátttöku.
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144
Page 145
Page 146
Page 147
Page 148
Page 149
Page 150
Page 151
Page 152
Page 153
Page 154
Page 155
Page 156
Page 157
Page 158
Page 159
Page 160
Page 161
Page 162
Page 163
Page 164
Page 165
Page 166
Page 167
Page 168
Page 169
Page 170
Page 171
Page 172
Page 173
Page 174
Page 175
Page 176
Page 177
Page 178
Page 179
Page 180
Page 181
Page 182
Page 183
Page 184
Page 185
Page 186
Page 187
Page 188
Page 189
Page 190
Page 191
Page 192
Page 193
Page 194
Page 195
Page 196
Page 197
Page 198
Page 199
Page 200
Page 201
Page 202
Page 203
Page 204
Page 205
Page 206
Page 207
Page 208
Page 209
Page 210
Page 211
Page 212
Page 213
Page 214
Page 215
Page 216
Page 217
Page 218
Page 219
Page 220

x

Uppeldi og menntun

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Uppeldi og menntun
https://timarit.is/publication/581

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.