Uppeldi og menntun - 01.01.2010, Síða 192

Uppeldi og menntun - 01.01.2010, Síða 192
Uppeldi og menntUn/icelandic JoUrnal of edUcation 19(1–2)/2010192 viðHorf hverja námsbraut (www.lhi.is). Við skipulagningu og uppbyggingu námsins eru við- mið skólans lögð til grundvallar ásamt viðmiðum ráðuneytisins. Allir íslensku háskólarnir hafa nú sett fram hæfniviðmið fyrir sínar námsleiðir sem telst góður árangur miðað við aðra háskóla á Norðurlöndum og annars staðar í Evrópu. En þó svo að þeir hafi sett viðmið er því ósvarað hvort og hvernig hæfniviðmið eru raunverulega uppfyllt. Eftirfylgnin felst annars vegar í því að skoða kennslu og nám- skeið með því að tengja hæfniviðmið námsbrauta við einstök námskeið og ganga úr skugga um hvort þeim eru gerð skil og hins vegar að meta árangur nemenda út frá þeim viðmiðum sem sett eru á námsbrautinni. Á síðastliðnu skólaári (2009–2010) hófst endurskoðun námskeiða við Listaháskólann þar sem sérhvert námskeið er skoðað markvisst og farið yfir hvaða viðmið námsbrautar tengjast viðkomandi námskeiði. Þannig er hægt að skoða hvort nám og kennsla á námsbrautinni í heild uppfylli þau viðmið sem sett eru. Fyrirhugað er að setja hæfniviðmiðin í hverja námskeiðslýsingu í vetur. Það er aftur á móti flóknara að meta hvort nemendur hafi tileinkað sér þá hæfni sem hver námsbraut krefst. Á næstunni mun skólinn leita leiða við að meta árangur nemenda með tilliti til viðmiðanna. Vegna sérstöðu listnáms á listsköpunin stóran sess í náminu og námsmatið er oft byggt á verkum eða sýningum nemenda. Í mörgum tilfellum fá nemendur umsagnir með einkunnum og eru þeir almennt mjög ánægðir með að fá umsagnir og telja að með þeim fái þeir betri endurgjöf fyrir verkefni sín, það er að segja í hvaða þáttum þeir standa sig vel og hvað mætti betur fara. Til að auka gæði námsmats eru í mörgum tilfellum fengnir utanaðkomandi prófdómarar til að meta viðfangsefni nemenda í lok námskeiðs. Með því er stuðlað að jafnræði, sanngirni og heildrænu námsmati. Eitt markmið Bolognaferlisins er að taka upp samevrópskt einingakerfi, svokallað ECTS-kerfi, sem auðveldar nemendum að fá nám metið á milli skóla. ECTS-eininga- kerfið á að endurspegla vinnuframlag nemenda. Námið í Listaháskólanum er marg- breytilegt og oft er erfitt að meta vinnuframlag nemenda því sú vinna sem nemendur leggja af mörkum í listnámi er ekki alltaf sýnileg. Reynt er eftir fremsta megni að hafa vinnuframlagið samkvæmt einingafjölda og til að tryggja það hefur skólinn kannað vinnuframlag nemenda í einstökum námskeiðum með því að fá nemendahópa til að meta vinnuframlag sitt. Námskeið eru í stöðugri endurskoðun og er þá meðal annars tekið tillit til mats nemenda. Fyrir tveimur árum tók Listaháskólinn alfarið upp ECTS- einingakerfið og hætt var að nota gömlu íslensku einingarnar. Annað markmið Bolognaferlisins er að taka í notkun viðauka með prófskírteinum. Viðaukinn, sem er á ensku, útskýrir vel inntak viðkomandi prófgráðu innan mennta- kerfisins. Skírteinisviðaukinn á að auðvelda nemendum að fá nám sitt metið erlendis. Samstarfsnefnd háskólanna vann sameiginlega að gerð skírteinisviðaukans og þegar nemendur útskrifast fá þeir skírteinisviðaukann afhentan. Listaháskólinn hefur gefið út skírteinisviðauka um nokkurra ára skeið. Samevrópska háskólasvæðið á að auðvelda hreyfanleika milli landa og háskóla og hvatt er til nemenda- og kennaraskipta. Listaháskólinn er í samstarfi við háskóla í Evrópu innan áætlana Evrópusambandsins þar sem lögð hefur verið áhersla á að efla og þróa námsbrautir, taka þátt í rannsóknarverkefnum og bjóða nemenda- og
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108
Síða 109
Síða 110
Síða 111
Síða 112
Síða 113
Síða 114
Síða 115
Síða 116
Síða 117
Síða 118
Síða 119
Síða 120
Síða 121
Síða 122
Síða 123
Síða 124
Síða 125
Síða 126
Síða 127
Síða 128
Síða 129
Síða 130
Síða 131
Síða 132
Síða 133
Síða 134
Síða 135
Síða 136
Síða 137
Síða 138
Síða 139
Síða 140
Síða 141
Síða 142
Síða 143
Síða 144
Síða 145
Síða 146
Síða 147
Síða 148
Síða 149
Síða 150
Síða 151
Síða 152
Síða 153
Síða 154
Síða 155
Síða 156
Síða 157
Síða 158
Síða 159
Síða 160
Síða 161
Síða 162
Síða 163
Síða 164
Síða 165
Síða 166
Síða 167
Síða 168
Síða 169
Síða 170
Síða 171
Síða 172
Síða 173
Síða 174
Síða 175
Síða 176
Síða 177
Síða 178
Síða 179
Síða 180
Síða 181
Síða 182
Síða 183
Síða 184
Síða 185
Síða 186
Síða 187
Síða 188
Síða 189
Síða 190
Síða 191
Síða 192
Síða 193
Síða 194
Síða 195
Síða 196
Síða 197
Síða 198
Síða 199
Síða 200
Síða 201
Síða 202
Síða 203
Síða 204
Síða 205
Síða 206
Síða 207
Síða 208
Síða 209
Síða 210
Síða 211
Síða 212
Síða 213
Síða 214
Síða 215
Síða 216
Síða 217
Síða 218
Síða 219
Síða 220

x

Uppeldi og menntun

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Uppeldi og menntun
https://timarit.is/publication/581

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.