Ný saga - 01.01.1989, Qupperneq 54
Yfirleitt gekk vel að
afla upplýsinga um
stéttarstöðu nánasta
skyld- og venslafólks
háembættismann-
anna.
sömuleiðis með fjölmörgum
nýjum embættum og stofnun-
um. í háembættismannastétt-
inni þá töldust 37 einstaklingar
en tveir eru teknir út hér vegna
ónógra upplýsinga. Það eru
einu útlendingarnir í hópnum,
þeir Emil Schou bankastjóri og
Olav Forberg landsímastjóri.
Hinir eru Björn Kristjánsson
bankastjóri, Björn Sigurðsson
bankastjóri, Eggert Ó. Briem
skrifstofustjóri, Einar Arnórsson
lagaskólakennari, Eiríkur Briem
prestaskólakennari, Geir T.
Zoéga yfirkennari, Guðmundur
Björnsson landlæknir, Guð-
mundur Hannesson héraðs-
læknir, Guðmundur Magnús-
son læknaskólakennari, Halldór
Daníelsson landsyfirréttardóm-
ari, Hannes Hafstein banka-
stjóri, Haraldur Níelsson presta-
skólakennari, Indriði Einarsson
skrifstofustjóri, Jóhann Þorkels-
son dómkirkjuprestur, Jón
Helgason prestaskólakennari,
Jón Hermannsson skrifstofu-
stjóri, Jón Jakobsson landsbóka-
vörður, Jón Jensson landsyfir-
réttardómari, Jón Kristjánsson
lagaskólakennari, Jón Magnús-
son bæjarfógeti, Jón Þórarins-
son fræðslumálastjóri, Jón Þor-
kelsson þjóðskjalavörður, Jón
Þorláksson landsverkfræðingur,
Klemens Jónsson landritari,
Kristján Jónsson landsyfirréttar-
dómari, Lárus H. Bjarnason
lagaskólakennari, Magnús
Helgason kennaraskólastjóri,
Ólafur Ólafsson fríkirkjuprest-
ur, Páll Einarsson borgarstjóri,
Sighvatur Bjarnason banka-
stjóri, Sigurður Briem póst-
málastjóri, Sigurður Thor-
oddsen bæjarverkfræðingur,
Steingrímur Thorsteinsson
rektor, Valgarð Claessen lands-
féhirðir og Þórhallur Bjarnar-
son biskup.
Yfirleitt gekk vel að afla upp-
lýsinga um stéttarstöðu nánasta
skyld- og venslafólks há-
embættismannanna. Þær eru
öllum aðgengilegar í Guðfræð-
ingatali, Lögfræðingatali, Lækna-
tali Verkfræðingatali o.s.frv.
Ennfremur var leitað í nokkur
ættfræðirit, manntöl og þar sem
erindið þraut var hringt í af-
komendur og leitað upplýsinga.
Óvissuþættir eru ekki mjög
margir um störf einstaklinga.
Þannig var óvíst um störf
þrigggja af 90 tengdasonum
embættismanna árið 1910 og er
þeim sleppt. Ennfremur var
börnum sem ekki komust til
fullorðinsára sleppt. Stærsti
óvissuþátturinn er um störf
tengdafeðra þeirra barna
embættismanna sem giffust út-
lendingum.
Um flokkunina er það að
segja að stéttum er skipt í 7
flokka. Þeir eru þessir:
1. Embættismenn.
2. Menntamenn. í þessum
flokki eru háskólamenntaðir
menn sem ekki hafa embætti
svo sem lögfræðingar sem
Þórhallur Bjarnarson biskup var einn af þeim 37 embættismönnum
sembjuggu I Reykjavík árið 1910. Hérerhann með fjölskyldu sinni.
Börnin í aftari röð eru: Svava, Tryggvi og Björn, en Dóra situr fyrir
framan foreldra sína, Valgerði og Þórhall.
52