Íslenzk tunga - 01.01.1965, Page 33
UM ALDUR OG UPPRUNA KV-FRAMBURÐAR
31
omstándigheler.“ Þetta kemur reyndar ekki sem bezt heim við það,
sem stendur í handritinu AM 582, 4to, en Kristian Kálund segir um
það: „En del af samlingen er dog skreven aj Jón Vigfússon, der s.
64r slulter med ordene „definitum. die 21 Septembris | Anno 1692 |
Ionas Wigfusius“.“ 44 Hugsanlegt er, að 1692 sé hér ritvilla.
Engar gamlar heimildir, nú kunnar, segja, að Jón sé sonur Vig-
fúsar lögréltumanns á Herjólfsstöðum, og er ekki hægt með neinum
rétti að segja, að Jarþrúður hafi verið kona hans. Vigfús á Her-
jólfsstöðum var kvæntur konu að nafni Guðrúnu Þorsteinsdóttur
og gat við henni hörn. Hann var lögréttumaður síðast 1645, en
síðan er ekkert um hann vitað. Hann hefur þá e. t. v. flutzt út í
Rangárvallasýslu, en þar voru synir hans búsettir, Jón bóndi í
Teigi og Eiríkur á Móeiðarhvoli.45 Ekki eru heimildir fyrir því,
að Vigfús hafi verið tvíkvæntur. Einu rökin, sem liggja til þess, að
Jón skrifari hefur verið talinn frá Herjólfsstöðum, eru þau, að faðir
hans er alnafni manns, sem hjó þar a. m. k. til 1645. En hver Vigfús
Jónsson sá hefur verið, er átti Þrúði, er alls óvíst. Því er ekki hægt
að fullyrða, að Jón hafi fremur verið Skaftfellingur en annars staðar
af landinu, nema síður sé, þegar litið er á ritháttinn 'i á undan -gi
hjá honum. Þrúður gat eins hafa búið nyrðra, en hafi ekki verið
svo, er hægt að skýra Hólavist Jóns með því, að hann var náskyldur
Gísla biskupi Þorlákssyni.40 En ekki er fráleitt að gera ráð fyrir,
að foreldrar Jóns hafi búið á Norðurlandi, og styður það fremur
en hitt, að Guðrún, systir Jóns, bjó á Hámundarstöðum í Eyjafirði,
og er hún þar 1703, þá 51 árs að aldri.47
3.34. Ekkert mælir móti því, að Jón Vigfússon hafi verið fæddur
og uppalinn á Norðurlandi, og þarf ritháttur hans engan veginn að
vera ritvilla.
44 Katalog ovcr Dcn Arnamagnœanslce h&ndskrijtsamling 1 (Kfíbenliavn
1889), 744.
45 Lögréttumannatal, 524. Einar Bjarnason ættfræðingur hefur í samtali við
mig lálið í ljós efasemdir um, að Vigfús, maður Þrúðar, og Vigfús á Herjólfs-
stöðum væri sami maðurinn.
40 Lœrðra manna œvir.
47 Manntal á íslandi árið 1703 (Reykjavík 1924—47), 323.