Almanak Hins íslenska þjóðvinafélags - 01.01.1920, Page 44
ráðið. En það er víst, að ótal óaldarmeun nota sér
byltinguna og stjórnleysið í landinu, sem ekkert
markmið hafa annað en að ræna og myrða, en fvrir
Lenin vakir hugsjón um nýtt skipulag mannfélagsins,
sem hann hyggur að leiða muni af sér gífurlegar
umbætur á kjörum mannkynsins. Hitt er og víst, að
hann er lítt vandur að vopnum til þess að berjast
að markmiði sínu og skoðanabræðra sinna: Niður-
skurði auðvaldsins og alræði öreiganna um allan heim.
Pað, sem hér segir frá Lenin styðst mest við ritgerð,
sem birtist í heimsblaðinu Times í Lundúnum síð-
astliðið vor, en sumt er tekið eftir öðrum heimildum.
Lenin er fæddur í Simbirsk í Rússlandi 10. apríl
1870. Er hann einn af fáum leiðtogum Bolsevíka, sem
er alrússneskur að ætt. Hann er kominn af aðals-
ættum, en ekki vóru nánustu ættmenn hans auðugir.
Pó hafði móðir hans eignast jarðeign að erfðum.
Faðir hans var embættismaður og svo var um marga
frændur hans. Ekki vóru náfrændur hans sumir neitt
auðsveipir ríkisvaldinu. Bryddi á uppreisnaranda í
kyninu. Systur hans tvær og bróðir vóru fyrir löngu
undir sérstakri gæzlu lögreglunnar, og Alexander,
annar bróðir hans, var tekinn af lífi árið 1887 sakir
hlutdeildar í samsæri gegn Atexander þriðja Rússa-
keisara. Lenin var þá 17 ára gamall og gerðist hinn
eitraðasti fjandmaður keisaravaidsins. Hann var alinn
upp í kaþólskum sið og gekk í undirbúningsskóla í
Simbirsk, en að því loknu fór hann í háskólann í
Kasan. Pað var sama árið, sem bróðir hans var
drepinn. Var hann rekinn úr skólanum eftir fáa
mánuði sakir þáittöku í stúdentaóeirðum gegn stjórn-
inni. Áriö 1891 var hann þó við nám i háskólanum í
Pétursborg og las þar lög og fjárhagsfræði. Arið 1895
fór hann fyrsta sinni til Pýzkalands, en kom heim
aftur sama ár. Pá var hann hneptur í varðhald í
Pétursborg sakir starfsemi sinnar i þágu jafnaðar-
mannastefnunnar. Var síðan dæmdur í þriggja ára út-
(6)