Tímarit Þjóðræknisfélags Íslendinga - 01.01.1961, Page 80

Tímarit Þjóðræknisfélags Íslendinga - 01.01.1961, Page 80
62 TÍMARIT ÞJÓÐRÆKNISFÉLAGS ÍSLENDINGA Vopnfirðing í mínu ungdæmi, sem Jón hét og var víst Jónsson, en í dag- legu tali alltaf nefndur Jón Vilborg- arson. Það er hreinasta fávizka að halda því fram, að ein aðferðin sé annarri betri, ættfræðilega, því með skírnar- og föðurnöfnum er sagan aldrei nema hálfsögð og algerlega ósögð, ef um rangfeðrun er að ræða. Auð- vitað bæta ættarnöfnin svonefndu þar ekki úr skák, því eigi aðeins tapar konan þar tilkalli til nafns síns heldur og ættartilkalli. Hér er eitt dæmi meðal milljóna þessa lands: Maður með írsku nafni flutti hingað til lands einhvern tíma á nítjándu öldinni. Hann var kvæntur skozkri konu. Þau áttu son, sem fékk sér konu af þýzkum ættum, þeirra sonur kvæntist alíslenzkri stúlku og eignuðust eina dóttur. Það var um það bil, að manntal var tek- ið, og er þar meðal annars krafizt, að þjóðernis sé getið í skýrslunum. Stúlkan, sem var hálf-íslenzk með ofurlitlu broti af íra í framætt, var skrásett sem íri. Nú er þessi stúlka gift ensk-ættuðiun dreng, svo í næsta manntali verða hennar börn talin ensk. Hvílíkt spott fræði- mennskunnar! Ættarnöfn eða kenninöfn urðu vafalaust til á einhverju stigi mjög snemma á öldum, og mætti geta sér þess til, að kóngar eða aðrir þjóð- höfðingjar og ættfeður hafi viljandi eða atvikanna vegna orðið fyrstir á blaði, og svo hafi fleiri og fleiri siglt í þeirra kjölfar,því eins og sálmaskáld- ið kvað: „hvað höfðingjarnir hafast að hinir ætla sér leyfist það“. Kon- ungar ganga enn undir tökunöfnum mann fram af manni, eins og allir vita, og bæta tölustöfum við til að- greiningar. Forfeðradýrkunin hefir jafnan verið snar þáttur í þróunar- sögu mannkynsins. Halda jafnvel sumir merkir fræðimenn því fram, að guðshugmyndin hafi fyrst orðið til á þeim grundvelli — að aftur í grárri forneskju hafi verið til af- burða ættarhöfðingjar, sem hétu ýmsum nöfnum, svo sem Brahma, Jehova, Júpiter, Óðinn eða eitthvað því um líkt, og þeir svo löngu síðar verið hafnir upp í guðasæti, um leið og yfirburðir þeirra voru margfald- aðir og blandað saman við náttúru- öflin, í þjóðtrúnni. Á síðari öldum, þegar fólkinu fjölgaði, en einkanöfnunum ekki að sama skapi, skapaði þörfin og óefað hefðin þessar tvær meginreglur, að halda sér að föðurnöfnum eða ætt- föðurnöfnum, sem ýmist áttu rót sína að rekja til uppnefna eða voru kennd við óðul, landslag, atvinnu- vegi, liti, eða þá beinlínis við for- feður lengra í ættir fram. Margir íslendingar, sem erlendis dvöldu um lengri eða skemmri tíma, tóku snemma upp ættarnöfn. Voru þeir þar auðvitað að fylgja lands- siðnum. En svo tolldu þessi nöfn við, eftir að heim kom. Bar mest á þessu meðal konunglegra embættismanna. Þá var og fjöldi erlendra manna, einkum í verzlunarstéttinni, sem tóku sér bólfestu í landinu, kvænt- ust íslenzkum konum, en héldu ætt- arnöfnum sínum óbreyttum. Ekki síðar en á 17. og 18. öld fer þetta að verða algengt, og ber þá t. d. Vídalíns nafnið hátt. Snemma á 19. öldinni er allt orðið kvikt af ættarnöfnum, og eru skáldin þar sízt eftirbátar:
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142

x

Tímarit Þjóðræknisfélags Íslendinga

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit Þjóðræknisfélags Íslendinga
https://timarit.is/publication/895

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.