Uppeldi og menntun - 01.01.2012, Page 54
Uppeldi og menntUn/icelandic JoUrnal of edUcation 21(1) 201254
lýðræðislegt samræðUmat
Markmið rannsóknarinnar var því meðal annars að skoða ávinning og annmarka
þess að að nota lýðræðislegt samræðumat í innra mati leikskóla. Lögð var áhersla á
að fanga álit ákveðins hóps hagsmunaaðila á því hvað telst mikilvægt í námi leik-
skólabarna og þjónustu við þau. Þegar samræðumat er notað er lögð áhersla á að hafa
fulltrúa allra hagsmunaaðila með í ráðum, að gefa öllum röddum vægi og að viðhalda
valdajafnvægi í umræðu (House og Howe, 2000). Börn hljóta að teljast helstu hags-
munaaðilar leikskólastarfs, en jafnframt þeir aðilar sem valdaminnstir eru. Því þarf
að leggja sérstaka áherslu á að fá fram viðhorf þeirra og að kynnast aðferðum þar
að lútandi. Litið er á börn sem borgara og á réttur barna til þátttöku í leikskólastarfi
að tryggja þeim aðgang að ákvarðanatöku og mati. Samræðumat gefur möguleika á
þátttöku barna í mati á starfi leikskóla og samrýmist vel helstu áherslum í Samningi
Sameinuðu þjóðanna um réttindi barnsins (Sameinuðu þjóðirnar, 1989). Sá samningur
hefur aukið réttindi þeirra til þátttöku í samfélaginu og til að hafa áhrif á umhverfi sitt,
meðal annars með því að koma sjónarmiðum sínum á framfæri.
Mat á lEiKsKólastarfi
Mat verður ætíð til í einhverju skipulagi, einhverju ákveðnu félagslegu samhengi.
Það stendur ekki eitt og sér sem einhver rök eða aðferð, laust við tíma og rúm, og það
er ekki heldur laust við gildi eða hagsmuni. Matsaðferðir eru öllu heldur samofnar
ákveðinni félags- og stofnanalegri starfsemi og kerfi. (House og Howe, 2000, bls. 3,
þýðing greinarhöfunda)
Markmið mats á gæðum leikskólastarfs samkvæmt lögum er að skoða hvort leikskól-
ar starfi eftir lögum og reglugerðum og að veita ákveðnar upplýsingar um það starf
sem fram fer innan leikskólans og þann árangur sem næst með því. Einnig er hlutverk
mats að auka gæði starfsins og tryggja rétt barna og þjónustu þeim til handa. Í lögum
um leikskóla er mat flokkað í annars vegar ytra mat og hins vegar innra mat leik-
skóla eða sjálfsmat þeirra (Lög um leikskóla nr. 90/2008). Starfsmenn stofnunar geta
séð um innra mat en einnig getur utanaðkomandi aðili framkvæmt innra mat í sam-
starfi við starfsmennina. Ytra mat getur tengst eftirlitshlutverki annarrar stofnunar,
t.d. ráðuneytis eða sveitarfélaga. Í lögunum segir enn fremur að hver leikskóli eigi
að meta með kerfisbundnum hætti árangur og gæði skólastarfs með virkri þátttöku
starfsmanna, barna og foreldra eftir því sem við á. Mat er ekki síst fyrir þá hagsmuna-
aðila sem veikustu röddina hafa og er meðal annars til þess gert að hvetja til samræðu
milli hagsmunaaðila, í þeim tilgangi að hjálpa þátttakendum að skilja sjónarmið sín og
athuganir betur (House og Howe, 2000).
Lýðræðislegt samræðumat
Á áttunda áratug tuttugustu aldar fóru menntunarfræðingar að mótmæla tæknilegum
matsaðferðum og töldu þær ekki henta skólastarfi (Fitzpatrick, Sanders og Worthen,
2004). Þeir lögðu þess í stað áherslu á mannlega þáttinn í mati sem endurspeglaði
hið flókna samhengi hversdagsins og hin ólíku sjónarmið þeirra sem að starfseminni