Uppeldi og menntun - 01.07.2014, Blaðsíða 15
Uppeldi og menntUn/icelandic JoUrnal of edUcation 23(2) 2014 15
V i ðta l V i ð j ó h ö n n U e i n a rs d ót t U r
við lýði innan sviðsins. Hægt er að byggja á víðtækri reynslu auk þess sem töluvert
hefur verið unnið að rannsóknum á kennsluháttum. Ég tel því að sviðið geti lagt heil-
mikið af mörkun við að þróa gæðakennslu við Háskóla Íslands.
Starfsfólk Menntavísindasviðs býr einnig yfir mikilli þekkingu á sviði menntamála
og menntunar kennara, þroskaþjálfa og tómstunda- og félagsmálafræðinga. Sérstaða
sviðsins liggur meðal annars í því að margir kennararnir líta fyrst og fremst á sig
sem kennaramenntendur (e. teacher educators) og skilgreina sérþekkingu sína á því
sviði. Það er því eðlilegt að sviðið hafi forystu um kennaramenntun innan Háskól-
ans. Menntavísindasvið býr líka að langri reynslu í menntun þroskaþjálfa þar sem
áherslan hefur verið á að mennta fólk til að starfa með fötluðu fólki á öllum sviðum
samfélagsins. Á sviðinu er því löng reynsla af starfsmenntun með tilheyrandi tengsl-
um við vettvang og vettvangsnám. Gott samstarf við starfsvettvang þeirra stétta sem
Menntavísindasvið hefur á sinni könnu hefur verið aðalsmerki sviðsins. Þar liggur
líka styrkur okkar.
Sérstaða Menntavísindasviðs felst einnig í þeirri breidd sem er í náminu. Fræði-
greinarnar innan sviðsins eiga að geta unnið vel saman og bætt hver aðra upp. Mér
finnst til dæmis mikilvægt að kennaranámið sé í tengslum við aðrar fræðigreinar,
eins og þroskaþjálfanámið. Við þurfum að hugsa um nám og skóla fyrir alla og því
finnst mér að þroskaþjálfanámið og þau viðhorf sem þar eru ríkjandi gætu komið
kennaranáminu mjög til góða. Í tómstundanáminu eru að gerast spennandi hlutir sem
kennaranámið getur einnig lært mikið af.
Ég hef verið talsmaður þess að við lítum á skólagöngu og nám barna sem samfellt
ferli og hef gert töluvert af rannsóknum á því sviði. Börn á Íslandi í dag hefja flest
leikskólagöngu tveggja ára. Daglegur skólatími í grunnskólum hefur lengst á undan-
förnum árum auk þess sem mörg börn sækja einnig frístundaheimili og skipulagt
íþrótta- og tómstundastarf. Félagsmótun og félagsleg tengsl hafa smám saman færst
inn á vettvang skóla og skipulegs frístundastarfs. Tilhneigingin hefur verið sú að þess-
ar stofnanir hafi lotið eigin lögmálum og haft lítið samstarf. Þessu þarf að breyta og
það gerist meðal annars með því að flétta saman nám þeirra stétta sem að uppeldi og
kennslu barna koma.
Í þessu samhengi má íhuga deildaskiptingu á Menntavísindasviði sem var ákveðin
við sameininguna og var gert ráð fyrir að yrði endurskoðuð að ákveðnum tíma liðn-
um. Að mínu mati er hætta á að skipting Menntavísindasviðs í deildir búi til múra og
skapi hindranir. Nú, þegar kennaranámið er orðið meistaranám, fer verkaskipting milli
Kennaradeildar og Uppeldis- og menntunarfræðideildar til dæmis að verða óskýrari.
Það er orðið tímabært að endurskoða deildaskiptinguna, en ég geri mér grein fyrir að
það er ekki einfalt mál og gerist ekki nema að forystumenn í deildunum séu tilbúnir
að stíga það skref. Til að breytingar verði til góðs þarf forystufólk sem er tilbúið
að taka þátt af heilum hug. Það þarf hugsjónir og áhuga til að standa fyrir og fylgja
eftir breytingum. Við þurfum að skoða hvað við erum ánægð með og hefur gengið
vel, hvað við teljum að við getum bætt og hvaða leiðir eru færar til þess. Í skýrslu
sjálfsmatshópsins um sameiningu Kennaraháskóla Íslands og Háskóla Íslands eru
settir fram fimm möguleikar á deildaskiptingu sviðsins og þá þarf að skoða.