Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.07.2013, Side 70

Frjáls verslun - 01.07.2013, Side 70
70 FRJÁLS VERSLUN 7. 2013 Frumkvöðlastarfið þá og nú var gerólíkt enda höft á öllu í kringum 1950 og þurfti t.a.m. fyrst að sækja um leyfi til að kaupa og flytja inn bíl. Viðhorfið til einkabílsins hefur einnig breyst til muna og í dag horfa stórfyrirtækin í bílaiðnaðinum aðallega til nýtingar annarra orkugjafa, t.a.m. rafmagns og metans. Nýsköpun á þessu sviði er ráðandi og væri t.d. bylting fyrir okkur Íslendinga að geta framleitt vistvæna orku á okkar eigin vistvænu bíla og verið þannig svolítið sjálfbær,“ segir Friðbert Friðbertsson, annar eigandi Heklu. Frumkvöðlastarf í stórfyrirtæki segir Friðbert vissulega vera annað í eðli sínu en þegar ein staklingur reyni að koma hug mynd á framfæri. Fyrirtæki sópi upp góðum hugmyndum og lítill hluti þeirra sitji eftir. Hjá bílafyrirtækjum sé ógrynni peninga varið í að velta fyrir sér framtíðinni og reyna t.d. að ímynda sér hvernig fólk muni fara á milli staða eftir 20 eða 30 ár. „Frumkvöðlastarf í þessum geira felst í því að ákveða lausnir. Það hefur t.a.m. náðst gríðar ­ legur árangur í að gera bíla spar ­ neytnari. Í dag er hægt að keyra á sæmilegum fjölskyldubíl frá Reykjavík til Akureyrar á 3½ lítra á 100 km en fyrir örfáum árum hefði þessi bíll eytt 10 lítrum. Auk þess eru bílar í dag miklu vist vænni hvað varðar útblástur og stórfyrirtækjum á borð við t.d. Wolksvagen og Audi er umhug­ að um hvað verður um vöruna þegar notkun er hætt. Helst stefna menn að því að sem mest úr bílnum sé endurnýtanlegt og járn eða stál notað aftur í hlut af sömu gæðum,“ segir Friðbert. Telur þú sprotaumhverfið hagstætt í dag? „Margt hefur áunnist hér hvað frumkvöðlastarfsemi varðar og ég tel fyrirtæki eins og t.d. Marel og Össur, sem spruttu upp úr sprotastarfsemi, mikla hvatningu fyrir fólk sem ætlar að leggja í slíkan leiðangur. Það er mikil­ vægt að geta bent fólki á þann gríðarlega árangur sem þar hefur áunnist. Um leið finnst mér að stjórnvöld mættu styðja enn betur við bakið á fyrirtækjum til að þróa hugmyndir til lengri tíma litið. Á Íslandi eigum við það til að hugsa hlutina á of skömmu tímaspani og hafa ekki úthald eða þolinmæði til að nýta góðar hugmyndir,“ segir Friðbert. Friðbert Friðbertsson, annar eigandi heklu. „Frumkvöðlastarf í þessum geira felst í því að ákveða lausn­ ir. Það hefur t.a.m. náðst gríðarlegur árangur í að gera bíla sparneytnari.“ Reynt að sjá inn í framtíðina Fyrirtækið Hekla ehf. var stofnað árið 1933 af ungum frumkvöðli, sigfúsi Bjarnasyni, sem þá hóf að flytja inn ávexti frá spáni og skapaði markað sem ekki var til hérlendis. Þetta var vísir­ inn að bílaumboðinu Heklu en í framhaldi af ávaxtainnflutningnum fór fyrirtækið að flytja inn jarðýtur í kringum 1950 og fékk í kjölfarið umboð fyrir volkswagen og síðar fleiri tegundir bíla. H e k l a stofnár: 1933. stofnendur: sigfús Bjarnason. markmið fyrirtækisins: Hekla er í eigu Friðberts Friðbertssonar og danska fyrirtækisins semler group, sem einnig hefur umboð fyrir volkswagen í danmörku. markmið eigenda Heklu er að byggja upp fyrirtæki á bílamarkaði sem býður viðskiptavinum sínum framúrskarandi vörur og þjónustu. Hekla hefur m.a. verið umboðsaðili volkswagen á íslandi í 60 ár en volkswagen ag er stærsti bílaframleiðandi heims og er gæða­ og tæknileiðtogi á bílamarkaði. Texti: María Ólafsdóttir Mynd: Geir Ólafsson
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116

x

Frjáls verslun

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.