Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.07.2013, Page 77

Frjáls verslun - 01.07.2013, Page 77
FRJÁLS VERSLUN 7. 2013 77 „Mér finnst að dá­ unar vert hvernig pabbi og samstarfs­ menn hans hugsuðu ætíð í lausnum og settu markið hátt en voru um leið raun­ sæir.“ – Geirþrúður Alfreðsdóttir flug­ stjóri. Tilkynnti félagið þá ný og lægri fargjöld Loftleiða á flugleið­ inni yfir Atlantshaf, milli Ameríku og Evrópu, og hóf fljót­ lega að nota slagorðið „We are slower but we are lower“, „hægar – en ódýrar“. L ýðveldisárið 1944 tóku nokkrir ungir menn sig saman og stofnuðu flugfélagið Loftleiðir. Það var sprota fyrirtæki þess tíma. Fjórum árum síðar hóf fé lagið áætlunarflug til New York og voru þeir Alfreð Elíasson og Krist inn Olsen flugmenn í þessari sögu legu ferð. Núna, sextíu og fimm árum síðar, lifir arftaki félagsins, Icelandair, góðu lífi. Viðskipta hugmyndin að fljúga með farþega á milli Evrópu og Banda ríkjanna innan öflugs leiða kerfis er grunnurinn að vel ­ gengni Icelandair og Íslendinga í fluginu. Svo skemmtilega vill til að flugáhöfn 65 ára afmælisflugsins til New York var skipuð af kom ­ endum þeirra sem flugu í fyrsta fluginu og var Geirþrúður Alfreðs ­ dóttir, dóttir Alfreðs, flugstjóri í ferðinni líkt og faðir hennar fyrir sextíu og fimm árum. Nokkur munur var á farkostum. Fyrir sextíu og fimm árum var flogið á 46 sæta Skymaster­flugvél sem bar nafnið Geysir. Flogið var á 330 km hraða á klukkustund. Millilent var í Goose Bay í Kanada til að taka eldsneyti og lenti svo vélin á Idlewild­flugvelli í New York 26. ágúst, en flugvöllurinn var endurskírður JFK 1963. Koma Geysis til New York vakti talsverða athygli og birtust fréttir af þessu fyrsta íslenska áætlunarflugi í helstu dagblöðum vestra. Viðskiptaumhverfið var ekki sér lega hagstætt hinum ungu Loft leiðamönnum árið 1944 en þeir hugsuðu ætíð í lausnum og héldu ótrauðir áfram þótt oft blési á móti. Velgengni Loftleiða bætti örugglega sjálfsmynd og sjálfs traust Íslendinga í hinu unga lýðveldi. Afreð Elíasson, fyrrverandi for stjóri Loftleiða og Flug ­leiða, og Kristinn Olsen voru í hópi frum kvöðlanna sem stofnuðu Loftleiðir. Þeir voru í hópi ungra manna sem stunduðu saman flugnám í Kanada og sneru heim að því loknu með flugvél og nýsköpunarkraft í farteskinu. Alfreð hafði frá upphafi hugarfar frumkvöðuls en í æsku ræktaði hann og seldi kanínur og hóf síðar leigubílarekstur, aðeins átján ára að aldri. Þá lét hann sér ekki nægja einn bíl heldur þrjá og fjölgaði sæt um í einum þeirra til að geta tekið fleiri farþega, nokkuð sem Loft leiðir gerðu svo síðar þegar fé ­ lagið lét lengja CL­44 Rolls Royce­ flugvélar sínar. ÖFLuG MARKAðS- SeTN ING Í BANDA - RÍKJ uNuM Fyrst um sinn sinntu Loftleiðir innan landsflugi en tókst með hag kvæmni og nýtni að færa út kvíarnar aðeins fjórum árum síðar og var fyrsta áætlunarflugsins til New York minnst í flugi Icelandair til sama áfangastaðar hinn 25. ágúst síðastliðinn. „Mér finnst aðdáunarvert hvernig pabbi og samstarfsmenn hans hugs­ uðu ætíð í lausnum og settu markið hátt en voru um leið raun sæir. Þeir voru mjög frjóir og fram sýnir í hugsun og hófu t.a.m. mark aðs­ her ferð í Bandaríkjunum á nýars ­ dag árið 1953. Tilkynnti félagið þá ný og lægri fargjöld Loftleiða á flugleiðinni yfir Atlantshaf, milli Ameríku og Evrópu, og hóf fljótlega að nota slagorðið „We are slower but we are lower“, „hægar – en ódýrar“. Vitnuðu þeir þar til þess að vélakostur Loftleiða var eldri og hægfleygari en hjá öðrum sem flugu á þessari flugleið en far ­ gjöldin voru á móti mun lægri,“ segir Geirþrúður. Í kjölfarið stundaði fyrirtækið öfluga markaðssetningu í Banda ­ ríkjunum og lagði þann grunn sem íslenskir ferðaþjónustuaðilar búa að enn í dag. Annað dæmi um framsýni Loftleiðamanna má nefna að þegar árið 1948 höfðu þeir ráðið til sín blaðafulltrúann Sigurð Magnússon. Hann var ætíð með puttann á púlsinum og vann ötullega að kynningu og markaðssetningu Loftleiða hé r­ lendis og erlendis og tók árlega á móti tugum blaðamanna til að kynna þeim Ísland og félagið. Enda kallaði Alfreð hann jafnan „besta blaðafulltrúa í heimi“. „Sigurður Magnússon átti hugmyndina um „stop­over“ á Íslandi sem gaf gestum á leið yfir Atlantshafið þann möguleika að stoppa hér í ákveðinn tíma á landinu og skoða sig um. Loft ­ leiða menn sáu fljótt að hér vantaði alla þjónustu fyrir ferðamenn og réðust í að byggja hótel, setja upp bílaleigu og fá Guðmund Jónasson, rútubílstjóra og vin pabba, til að sjá um rútuferðir. Þetta er gott dæmi um atorku þeirra og hvernig þeir unnu úr því sem þurfti að gera. Þeir voru ætíð að leita að nýjum tækifærum,“ segir Geirþrúður. Fyrr á árum var ýmislegt með öðru sniði og öll við ­skipti mun þyngri í vöf um og flóknari en er í dag á tím ­ um farsíma og tölvupósts. Til dæmis þurfti að panta símtal við útlönd með því að hringja í Talsamband við útlönd og bíða jafn vel í nokkra klukkutíma til að fá samband. Þrátt fyrir það sóttu Loftleiðamenn tæki ­ fær in þangað sem þau var að finna en Loftleiðir tóku þátt í stofnun flugfélagsins Cargolux í Lúxemborg og keyptu auk þess rekstur Air Bahama. Loftleiðir áttu einnig þriðjung í Aerogolf­ hó telinu í Lúxemborg og voru skrifstofur Loftleiða reknar um allan heim. Segir Geirþrúður hafa verið talað um það í léttum dúr að sólin hafi í raun aldrei sest hjá
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116

x

Frjáls verslun

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.