Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.07.2013, Page 90

Frjáls verslun - 01.07.2013, Page 90
90 FRJÁLS VERSLUN 7. 2013 og eru vélar fyrirtækisins mikið notaðar í bátum, landvinnslu og fiskeldi erlendis, sem er stærsti markaðurinn okkar.“ Thor Ice setur fljótlega á markað nýja umhverfisvæna línu í vélum auk þess sem byrjað er að framleiða vélar í minni báta en áður sem eru ódýrari en eldri útgáfur. „Við erum þannig að reyna að ná til fleiri aðila og tryggja jafnvel að litlu bátarnir geti kælt aflann hratt og vel.“ Rekið með hagnaði Þorsteinn segir að rekstur Thor Ice hafi gengið upp og ofan eins og eigi oft við um sprotafyrirtæki. „Markmiðið var alltaf að fyrirtækið yxi ekki hraðar en við réðum við fjárhagslega. Fyrirtækið hefur yfirleitt verið rekið með hagnaði og fékk í fyrra viður­ kenningu iðnaðarráðherra, vaxtarsprotann, í sínum flokki. Við notum allan hagnað til þess að fjármagna fyrirtækið áfram og hef ur aldrei verið greiddur út arður heldur er hann nýttur í vöxt hvað varðar markaðsmál og þróunarmál.“ Um 80­90% af framleiðslu fyrirtækisins eru seld utan og segir Þorsteinn að stór hluti þess tengist umhverfisvænum lausn­ um sem önnur fyrirtæki bjóði ekki upp á. „Við höfum verið að vinna verkefni í um ­ hverfis vænum vélum með styrk frá Tækni ­ þróunarsjóði auk þess sem við höf um unnið mikið með Matís og fengið mikil vægan stuðning frá Íslandsstofu. Það er hluti af því sem hefur tryggt velgengni fyrir tækisins.“ Ískrapavélar Thor Ice eru mikið notaðar í bátum, landvinnslu og ekki síst fiskeldi erlendis. Umhverfisvænar rafmagnsvindur Naust Marine var stofnað fyrir tuttugu árum og var lögð á hersla á þróun og markaðs­setningu á búnaði fyrir sjávar­útveg og annan iðnað. Þar má nefna þróun og framleiðslu á sjálfvirku togvindukerfi, ATW CatchControl, en nokkr ir stofnendur Naust Marine höfðu verið að þróa kerfið frá árinu 1971. Fyrirtækið hefur auk þess þróað AUTO GEN­kerfi til rafa la ­ stjórnunar sem er ætlað að stjórna og sam ­ ræma kraft mótora sem og að hámarka afköst mótora þegar raforkuþörf er mikil. Þá hefur Naust Marine framleitt rafknúið vírastýri sem stýrir og bætir röðun á tromlu. Bjarni Þór Gunnlaugsson, framkvæmda­ stjóri fyrirtækisins, segir að það hafi tekið sinn tíma að koma fyrirtækinu á fót þannig að reksturinn gæti orðið eins góður undan­ farin ár og raun ber vitni. Starfsmenn eru tuttugu og einn og rekur fyrirtækið verslun og iðnstýrideild auk þess að vera með söluskrifstofu í Bandaríkjunum. Fjárhagslega hagkvæmt „Rafmagnsvindurnar eru mjög umhverfis­ vænar og mun minni olíunotkun er um borð í skipum með rafmagnsvindum en í skipum með glussavindum. Þá kemur oft upp olíuleki frá glussanum og þá lekur alltaf ein­ hver olía í sjóinn. Það eru því margir kostir við rafmagnsvindur. Sífellt fleiri nýir togarar eru með rafmagnsvindur um borð og kerfið okkar borgar sig upp á frekar skömmum tíma þar sem olíuverð er alltaf að hækka.“ Bjarni Þór segir að Naust Marine selji rafmagnsvindur til fjölda landa og að fram­ undan sé að reyna að komast á enn fleiri markaði. „Það þarf að bæta búnaðinn; halda áfram að þróa hann og gera hann enn betri í saman burði við keppinauta okkar. Við þurf­ um einnig að koma með nýjar vörur sem henta vel á þennan markað. Síðan von umst við til að markaðurinn á Íslandi fari að opnast aftur og eru öll teikn á lofti um að það fari að gerast þar sem skipakostur Ís lendinga er orðinn mjög gamall. Við erum að heltast úr lestinni miðað við aðrar þjóðir.“ bjarni Þór gunnlaugsson. „Rafmagnsvindurnar eru mjög umhverfisvænar og mun minni olíunotkun er um borð í skipum með rafmagnsvindum en í skipum með glussavindum.“ „Sífellt fleiri nýir togarar eru með rafmagnsvindur um borð og kerfið okkar borgar sig upp á frekar skömmum tíma þar sem olíuverð er alltaf að hækka.“ Texti: Svava Jónsdóttir Mynd: Geir Ólafsson SJÁVaRkLaSiNN Naust Marine:
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116

x

Frjáls verslun

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.