Frjáls verslun - 01.07.2013, Síða 91
FRJÁLS VERSLUN 7. 2013 91
Vöru og framleiðsluþróun
er alltaf í aðalhlutverki
hjá Lýsi og núna eru vörur
Lýsis seldar í sjötíu
löndum.
Codland:
Fjórar nýjar verksmiðjur
í startholunum
Codland var stofnað í fyrra og er markmiðið að tengja sam an fyrirtæki hér á landi sem vilja vinna meiri verðmæti úr aukaafurðunum sem frá fisk
vinnslunum koma. Eigendur fyrirtækisins
eru Vísir og Þorbjörn í Grindavík en sam
starfið innan þess nær til margra annarra
fyrir tækja.
„Hugsunin er að fyrirtækin semji hvert
við annað t.d. um samstarf, samvinnu eða
eigna tengsl, allt eftir eðli hvers verkefnis og
vilja eigenda hverju sinni, og á það jafnt við
um Codlandið sjálft sem önnur fyrirtæki og
aðilana innan þess,“ segir Pétur Pálsson,
einn talsmanna Codlands og framkvæmda
stjóri Vísis.
Hugmyndin er jafnframt að skapa grund
völl til frekari rannsóknar og þróunarstarfs
og bjóða upp á heildstæðar lausnir í vinnslu
tækni og uppsetningu þess tækja bún aðar
sem þarf.
„Við erum núna að koma grunneiningun
um í gang, sem felst í að hefja rekstur fjögurra
verksmiðja til viðbótar við hina hefð bundnu
fiskvinnslu. Ein vinnur mjöl og lýsi úr slógi
með nýrri aðferð og er rekstur hennar hafinn
og ein mun vinna kollagen úr roði og fer hún
í gang um næstu áramót. Ein verksmiðj
an vinnur ensím úr þorskgörn um sem aftur
tengist annarri sem býr til bragð efni af
ýms um toga og er ætlunin að setja þá verk
smiðju í gang í upphafi næsta árs.
Þegar þetta er allt farið að snúast munum
við horfa til frekari vinnslu á þeim efnum
sem úr þessum verksmiðjum koma með
framleiðslu og markaðssetningu á heilsu
og snyrtivörum. Draumurinn er svo að
Texti: Svava Jónsdóttir Mynd: Geir Ólafsson
Lýsi:
Áhersla á gæði
og hreinleika vörunnar
Tryggvi Ólafsson stofnaði Lýsi árið 1938 í kjölfar þess að for svarsmenn bandaríska fyrirtækis ins Upjhon Ltd. höfðu samband við hann vegna skorts
á vöru sem innihéldi A og Dvítamín en
þorskalýsi var einn helsti Dvítamíngjafi
þessa tíma. Lýsi var því stofnað til að sinna
fram leiðslu á lýsi til útflutnings.
„Viðskiptahugmyndin hefur til langs tíma
falist í því að auka verðmæti innlendrar
framleiðslu ásamt því að færa fólki bætta
heilsu og aukin lífsgæði,“ segir Katrín
Péturs dóttir, forstjóri fyrirtækisins. „Við
höfum verið að stækka og endurnýja
verksmiðjur til að öðlast stærri markaðs
hlut deild á heimsvísu í framleiðslu á
hreinsuðum, náttúrulegum fiskolíum.
Það hefur tekist og við höfum aukið af
köst fyrirtækisins mikið. Við tókum nýja
verk smiðju í gagnið árið 2005 og fórum
þar með úr 3.000 tonnum í 6.500 tonn.
Önnur verksmiðja var tekin í gagnið í fyrra
og þá jókst framleiðslan í 13.000 tonn.
Markaðurinn hefur tekið vel við vörum
fyrirtækisins vegna þess að við byggjum
á gömlum og góðum grunni en fyrst og
fremst er það náttúrlega áhersla okkar á
hreinleika og gæði vörunnar ásamt því að
veita góða þjónustu sem hefur aflað okkur
þessarar stöðu á markaðnum.“
Katrín segir að vöruþróun og framleiðslu
þróun séu alltaf í aðalhlutverki og í dag eru
vörur Lýsis seldar í sjötíu löndum. „Áhersl
an framundan er að efla neytendavörur á
ýmsum mörkuðum.“
Hún segir reksturinn hafa gengið mjög
vel og samkvæmt áætlun.
„Við settum fram áætlun um þróun fyrir
tækisins og hefur það gengið hraðar en
við ætluðum. Við ætluðum að vera komin í
þá stöðu, sem við erum í núna árið 2016.
Markaðurinn hefur tekið vel á móti okkur
með aukið framboð.“gæða matvara. „Það
er ein meginbreyting in sem stuðlar að
velgengni þessarar vöru.
pétur pálsson.
katrín pétursdóttir, framkvæmdastjóri Lýsis.