Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.09.1959, Síða 9

Tímarit Máls og menningar - 01.09.1959, Síða 9
EINN AF JÓGÍNUM VERKSINS Iiafa ekki í æskn átt þess kost að gání;a í skóla og ver'ða lærður maður svosem verið hiifðu ýmsir fyrri aittmenn hans. Hann liafði af náttúrunni flestar þær gáfur sem prýtt fá lærða menn: skilníng, næmi, minni, ímyndunarafl, nákvæmni, atorku, smekk. En Vilborgarkot og Bríngurnar sögðu pass. Það var átak hjá únglíngi úr örreytiskoti, þó ekki væri nema drífa sig suður og fara að stunda handiðn. En þó Hallbjörn nyti ekki reglulegrar skóla- gaungu notaði hann tómstundir sínar til sjálfsmentunar og náði árángri sem margur skólageinginn maður hefði mátt öfunda hann af. Hann var allra manna best að sér í almennum greinum og ávinníngur að ræða við hann um mörg efni sem talin eru undir lærdóm, jafnvel að fara með honum að spásséra á víðavángi, því hann kunni skil á einni og sérhverri jurt sem fyrir augun bar. Hann hafði það góða undirstöðu í latínu að ég heyrði hann einusinni lesa og útleggja kirkjulatneskan texta uppúr fomu prenti; var bjargálnamaður í ensku og frönsku, og svo útfarinn í þýsku að hann skrifaði á þeirri túngu og hélt á henni ræður ef þurfti; var enda oft sendur af íslenskum prenturum á þíng og hátíðar að koma fram fyrir hönd stéttarinnar útum heim. Þó var íslenskan honum kærust viðfángsefna og sú grein, utan prentlistarinnar, sem hann stundaði af mestum metnaði. Hann nam íslensku bæði af fræðimönnum og vísindaritum og sýndi slíka þekk- íngu á málfræði úngur prentari, að honum var veittur aðgángur að háskólanum og stund- aði þar nám undir handleiðslu Björns prófessors Olsens, þess manns sem hann virti ævi- lángt flestum ofar. Eftir Hallbjörn liggur sitt hvað smærri rita sem ég hef því miður ekki tök á að telja hér, en skal nefna hugvekju hans um íslenzkt mál, sem hann gaf út á prenti árið 1944; brýnir þar fyrir löndum sínum siðferðisskyldu og þrifnað sem felist í því að vanda túnguna. En hann var á miðjum starfsaldri sínum settur í þá þegnskylduvinnu hjá flokki sínum að stjórna Alþýðublaðinu, og hafði lítinn vinnukraft við hlið sér og stundum aungan, en varð að leggja nótt við dag árum saman. Þessi annasami starfi, sem hann hafði tekist á hendur af innri skyldukvöð vegna sósíalismans, gekk mjög nærri starfskröftum hans, og lamaði þá eftilvill að nokkru leyti svo hann har aldrei sitt bar fullkomlega eftir þessa fimm ára skorpu; þessi skylduritstörf tóku frá honum gleði af ritstörfum og laungun til þeirra upp frá því, að sögn hans. Hann mátti varla sjá penna fyrstu árin eftir. Mart af því sem hann skráði, og þá sérílagi þeir hlutir sem hann hefur látið eftir sig um prentlist, mundu sóma vel minníngu hans í safnriti, og vík ég því máli til stéttarhræðra hans og annarra vina. Sú bók þyrfti ekki að vera stór, en ekki mundi hjá því fara að hún gæfi mynd af gáfumanni og öðlíngi sem helsti fáar bækur gera; og lygi mundii menn ekki finna í þeirri bók fremur en sjálfri lífsbók Hallbjarnar Halldórssonar. 103
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100

x

Tímarit Máls og menningar

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.