Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.09.1959, Blaðsíða 87

Tímarit Máls og menningar - 01.09.1959, Blaðsíða 87
VEROLD bræðra sinna og er rödd veraldar sem var. I bók hans kynnumst við ýmsum mætustu andansmönnum tímabilsins frá aldamótum fram að síðari heims- styrjöld, ýmsir ágætustu menn tímans voru nánir vinir Zweig: menn eins og Rilke, Paul Valery, von Hofmansthal, Rodin, Gorki, Verhaeren, Benedetto Croce, Richard Strauss og Romain Rolland. Heimili hans í Salzburg varð gististaður margra þeirra sem gnæfðu upp úr í listum og menningarlífi álf- unnar; þangað hafði Zweig líka náð saman hinu fágætasta safni handrita eftir tónskáld og skáldsnillinga eins og Mozart og Goethe og Leonardo da Vinci, þaðan hraktist hann þegar hin- ar villtu siðblindu hjarðir nasismans ruddust út úr lokræsunum og streymdu yfir löndin með sýkil fólsk- unnar sem æðsta yfirvald og úðuðu eitrinu yfir löndin undir teikni and- skotans. Stefan Zweig varð að flýja undan nasistunum og sjá þá gleypa hvert landið eftir annað og blása pestar- loftinu yfir allt sem honum var kært. Og hann sem var útlægur bannfærður og ofsóttur Austurríkismaður þarf að eyða efri árum sínum við að fylla út umsóknir um dvalarleyfi og svara spurningum í þrálátum yfirheyrslum tortryggður á þeim forsendum að hann sé þegn þess ríkis sem hann hafði aldrei verið undir gefinn: Stefan Zweig var alfarinn frá Austur- ríki þegar það komst í vald þýzku SEM VAR nasistanna sem luenndu bækur Zweig á torgum. Eins og fleiri meðal hinna ágætustu manna þýzkrar menningar á þessari öld var Zweig gyðingur. Það er svo hlálegt að á mesta niðurlæg- ingarskeiði þýzkrar menningar nas- istatímabilinu er það ekki sízt hlutur þýzkra gyðinga að friðþægja fyrir glæpi nasistanna: menn eins og Feuchtwanger, Einstein, Sigmund Freud, Stefan Zweig, þessir menn bera áfram arfinn sem var lífsréttur Þýzkalands. Kannski var þetta ekki niðurlægingarskeið fyrir bókmenntir Þýzkalands þegar á allt er litið vegna útlaganna sem héldu áfram að skapa mikil verk þótt þeim væri bannaður aðgangur að lesendum og hlutu að starfa við daufar undirtektir í fram- andi löndum. Hvað um menn eins og Robert Musil, Hermann Broch, Ber- tolt Brecht svo að við nefnum þrjá meistara þýzkrar tungu á þessari öld sem ekki standa skráðir í bók Zweig en urðu allir að flýja nasismann. Og Thomas Mann. Þeir standa allir í fremstu röð meðal höfunda álfunnar á þessu skeiði. IV Meðan heimsstyrjöldin fyrri geis- aði umhverfðist allt af hatri og illsku þó ekki væri hin nasistiska villi- mennska ennþá komin til. Zweig lýsir því svo ítarlega í sínum gagnorða þétta stíl hvert áfall sú styrjöld varð fyrir andlegt öryggi álfunnar og 181
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100

x

Tímarit Máls og menningar

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.