Tímarit Máls og menningar - 01.09.1959, Blaðsíða 97
MAL OG MENNING
Byggingin á Laugavegi 18
Bygging Vegamóta á Laugavegi 18 er að komast undir þak og verður innan skamms far-
ið að innrétta húsið.
Eitt sinn lagði ég hér í Tímaritinu þá spurningu fyrir félagsmenn: verður Laugavegur
18, þó að byggingin komist upp, félagsheimili Máls og menningar eða ekki? Þessari spurn-
ingu er ósvarað enn og félagsmenn einir geta gefið svarið. Stjórn félagsins hafði á því allan
liug að Mál og menning gæti eignazt þriðjung a. m. k. af hlutafé Vegamóta en slíkt var
ekki mögulegt nema með framlögum félagsmanna sjálfra. Raunin hefur orðið sú að Mál og
menning á ekki nema fjórðung hlutafjárins og hlýtur það að hefna sín síðar þegar bygg-
ingin fer að gefa arð. En verra er hitt að þegar byggingin stendur loks fullreist hefur Mál
og menning ekki fjármagn til að hagnýla sér hana heldur verður að leigja öðrum allar
hæðir hússins, nema part af fyrstu hæðinni sem fer undir bókabúðina, og fyrir hverju var
þá verið að berjast? Fyrir því að félagið fengi ekki að njóta hússins fyrr en seint og síðar
meir, ef til vill ekki fyrr en einhvern tíma í fjarlægri framtíð? Nei, slík var ekki ætlunin
þegar af stað var farið og nokkur hópur félagsmanna tók svo vel undir. Við vonuðumst til
að félagsmenn mundu fylgja þessu máli eftir og leggja það af mörkum til byggingarinnar
að hún gæti um leið og henni væri lokið, a. m. k. hluti hennar, komið Máli og menningu
að gagni: að þar gætu orðið samkomusalir, lesstofur, hókaherbergi eða með öðrum orðum
félagsheimili handa Máli og menningu, auk bókaverzlunarinnar. En fé það sem safnaðist
með sölu skuldabréfa og liinni höfðinglegu gjöf Ifalldórs Laxness hefur eingöngu hrokkið
til að tryggja Máli og menningu fjórðung hlutafjárins, og er þó stór hluti þess skuld.
Kostnaður við innréttíngu bókabúðarinnar
En þó að Máli og menningu gefist ekki kostur á húsrúmi í byggingunni nema fyrir bóka-
búð sína kostar það eitt sér mikla fjárhæð að innrétta hana og búa hana fjölbreyttu úr-
vali bóka og ritfanga, eða aldrei minna en hálfa miljón króna. Ætlast félagsmenn til að
stjórnin útvegi allt þetta fé að láni í bönkum og það verði skuld félagsins eða vilja þeir
sjálfir leggja eitthvað af mörkum til að eignast hagkvæma nýtízku bókaverzlun? Ekki
þyrfti nema eitt þúsund félagsmenn í Reykjavík með 500 kr. framlag hver til þess að upp-
hæðin væri fengin. Mér sýnist þetta fremur vera spurning um áhuga en f jármál.
Ný hlutdeildarskuldabréf
Fyrir sex árum gaf Mál og menning út 300 þús. kr. skuldabréf með 1% vöxtum og fór
andvirði þeirra til kaupa á hlutabréfum í Vegamótum. Um síðustu áramót hófst fyrsti út-
dráttur á þessum bréfum en dregin eru út 30 þús. kr. á ári. Eigendur bréfanna hafa ekki
nærri allir vitjað greiðslu, en þau eru til útborgunar á skrifstofu Ragnars Ólafssonar hæsta-
réttarlögmanns, Vonarstræti 12. Látum við fylgja hér á eftir númer þeirra bréfa sem ekki
hefur enn verið vitjað.
Með innréttingu búðarinnar í huga og jafnframt aukningu hlutafjáreignar Máls og
menningar í Vegamótum ákvað stjórnin í desember í fyrra að gefa út ný hlutdeildarskulda-
liréf að upphæð 300 þús. kr. Þessi bréf eru enn óseld, en nú þegar að því er komið að inn-
rétta bókabúðina er Máli og menningu það nauðsynlegt að geta selt þessi skuldabréf. Þau
191