Tímarit Máls og menningar - 01.09.1959, Blaðsíða 12
JAKOB BENEDIKTSSON
Jón Helgason sextugur
Inngangsorð að útvarpsdagskrá, fluttri 30/6 1959
JÓN prófessor Helgason er sextugur
í dag. Allt frá því að hann fór til
Kaupmannahafnar seytján ára gam-
all stúdent, hefur hann dvalizt er-
lendis og aðeins komið hingað heim
sem geslur endrum og sinnum. En
vinir hans hér á landi eru margir, og
á þessum merkisdegi í ævi Jóns leitar
hugur þeirra í landsuður. Til þess
liggja mörg rök og fleiri en svo að
þau verði talin hér. Fyrir tuttugu ár-
um sendi Jón Helgason frá sér lítið
ljóðakver, en þar standa í eftirmála
þessi hógværu orð: „Um skáldnafn
hefur mig aldrei dreymt, enda hef ég
ekki ort með það fyrir augum að láta
á prent.“ En margt fer öðruvísi en
ætlað er; þetta litla Ijóðakver og
síðari útgáfa þess, sem kom út auk-
in og breytt níu árum síðar, gerði
Jón Helgason drjúgum kunnari öllum
þorra manna hér á landi en saman-
lögð fræðirit hans fram að þeim tima.
Þetta fer að líkindum. Fræðistörf
Jóns Helgasonar hafa flest verið þess
eðlis að almenningur hefur haft af
þeim lítil kynni, en kvæði hans urðu
undir eins hugfólgin hverjum íslend-
ingi sem á annað borð opnar ljóða-
bók. Ég skal ekki fara mörgum orð-
um um kvæði Jóns, enda tala þau bezt
sínu máli sjálf, og nokkur þeirra fá
hlustendur að heyra hér á eftir; ég
vildi aðeins mega tilfæra eina setn-
ingu sem Snorri Hjartarson skrifaði
um þau fyrir tíu árum: „Þótt kvæði
Jóns séu fá og orðin til á stopulum
tómstundum frá erfiðum og tímafrek-
um störfum, eru hin beztu þeirra
gædd þeirri snilld og kynngi að í
krafti þeirra verður hann ætíð talinn
með mestu skáldum okkar á fyrri
hluta þessarar aldar.“ Við þessi um-
mæli skal engu bætt, en þau mega
vera nokkur skýring á skáldfrægð
Jóns meðal Islendinga.
En íslendingar eiga Jóni Helgasyni
engu síður drjúga þakkarskuld að
gjalda fyrir þau miklu og merkilegu
störf er hann hefur unnið á því sviði
sem hefur verið ævistarf hans og aðal-
viðfangsefni. Hann hefur nú um þrjá-
tíu ára skeið verið prófessor í íslenzk-
um fræðum við Hafnarháskóla og
106