Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.09.1959, Side 59

Tímarit Máls og menningar - 01.09.1959, Side 59
NOKKUR ORÐ UM ÍSLENZKAN FRAMBURÐ Helga Hjörvar og konu hans s.l. haust, þar sem kveðið er á um verð- launaveitingar úr þessum sjóði fyrir fegurst talað mál í útvarp. Var sjóðs- stofnun þessi fögur kveðja hins þjóð- kunna útvarpsmanns, sem á s.l. ári lét fyrir aldurs sakir af löngu og merku starfi sem skrifstofustjóri útvarps- ráðs. Þótt þeim mönnum, sem kenna ís- lenzku í skólum okkar, ætti ekki að vera skotaskuld úr því að leiðrétta meinlegustu villur í framburði nem- enda, ber hins að minnast, að hér á landi hefur engin samræming íslenzks framburðar enn átt sér stað; og má reyndar segja, að hún hafi ekki verið framkvæmanleg sökum skorts á nauð- synlegum undirbúningi. Einn kennari notar þennan framburð, annar hinn, og fer það venjulega eftir því hvaðan menn eru ættaðir af landinu; og sama máli gegnir vitanlega um okkur leik- ara, presta, þingmenn og útvarpsþuli og aðra þá, sem skilyrði hafa til að móta framburð öðrum fremur. Það er satt að segja ekki efnilegt fyrir erlendan stúdent, sem kemur hingað til Islands til þess að læra að tala málið. Af kennslubókum í ís- lenzku fyrir útlendinga er tæplega um annað að ræða en bók dr. Stefáns Einarssonar annars vegar og hins vegar bók Sigfúsar Blöndals, bóka- varðar. En guð hjálpi þeim stúdent, sem ætlar að notfæra sér báðar bæk- urnar, því þá Stefán og Sigfús greinir á um aðalatriði þessa máls. Hefur hvor sinn framburð. Er þetta gott dæmi um ósamræmið og óreiðuna, sem hefur ríkt og ríkir i þessum efn- um á íslandi. Það var því ólítið gleðiefni, þegar dr. Björn Guðfinnsson hóf rannsóknir sínar á íslenzkum framburði. En upp- haf þess máls var það, að á haustþing- inu 1939 hafði verið ætlað nokkurt fé á fj árhagsáætlun Ríkisútvarpsins „til málfegrunar eftir fyrirmælum kennslumálastjórnarinnar“, eins og komizt var þar að orði. Var þetta í fyrsta sinn, sem fé var veitt til mál- lýzkurannsókna á íslandi. Tveim árum síðar, eða 1941, eftir að rannsóknir voru hafnar, kom í ljós að frekari fjárveitingar væri þörf, en þáverandi forsætisráðherra, Hermann Jónasson, sem einnig fór með kennslumálin, hljóp þá undir bagga og veitti aukinn styrk til greiðslu ferðakostnaðar við mál- lýzkurannsóknirnar, og árið 1946 kom svo út fyrsta bindi dr. Björns um mállýzkur, þar sem saman voru tekn- ar niðurstöðurnar af rannsóknum hans. Má segja, að rit þetta hafi ekki ver- ið byggt á sandi, því dr. Björn og að- stoðarmenn hans rannsökuðu fram- burð um það bil 10.000 manna víðs vegar um land og var framburður hvers hljóðhafa skráður á sérstakt spjald. Dr. Björn hugsaði sér þetta fyrsta bindi af tveim eða þrem, en 153

x

Tímarit Máls og menningar

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.