Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.09.1959, Page 13

Tímarit Máls og menningar - 01.09.1959, Page 13
JÓN HELGASON SEXTUGUR tveimur árum lengur forstöðuinaður Árnasafns, vörzlumaður þeirra fjár- sjóða sem íslendingar eiga dýrasta. Á þessum vettvangi hefur hann verið útvörður íslenzkrar menningar og varið það rúm með þeim ágætum að hann hefur fyrir löngu unnið sér sess í fremstu röð þeirra manna sem við íslenzk fræði fást. Og þekking hans á íslenzkum handritum er meiri en nokkurs manns annars fyrr og síðar, síðan Árna Magnússon leið. „Undirstaða gjörvallra íslenzkra bókmenntarannsókna, allt fram á 19. öld, eru fullnægjandi útgáfur.“ Svo fórust Jóni Helgasyni orð fyrir mörg- um árum, og ævistarf hans hefur sýnt að hann lét ekki standa við orðin tóm. Langmestur hluti fræðimennsku hans hefur verið helgaður útgáfustarfsemi og fílólógiskum rannsóknum í sam- bandi við útgáfur. Flestar þær útgáf- ur sem hann hefur unnið að eru undirstöðuútgáfur eftir handritum, en það þýðir í fám orðum sagt strang- vísindalegar útgáfur, þar sem öll handrit eru könnuð til hlítar og sýnt fram á hver þeirra séu einhvers nýt í leitinni að upphaflegum texta. Slíkar útgáfur eru svo ofboðslegt þolin- mæðis- og eljuverk að engan getur rennt í það grun sem ekki hefur kom- ið nálægt slíku starfi. En þær eru eitt hið mesta nauðsynjaverk sem unnið verður í allri textarannsókn, því að án þeirra er öll þekking á sjálfum textanum reist á sandi, og þess eru nóg dæmi að lélegar útgáfur hafa átt söku á villukenningum sem kostað hefur gífurlega vinnu að útrýma, jafn- vel heilar bækur. Afköst Jóns Helgasonar í fræði- störfum eru geysimikil — ég hygg að útgáfur hans og frunisamin rit séu orðin nær fimm lugum binda, auk fjölda ritgerða í tímaritum og safn- ritum. Hitt er þó meira um vert að hann hefur ekki látið sér nægja að feta í slóð fyrirrennara sinna, heldur hefur hann sett markið hærra, hert á kröfunum um nákvæmni og vand- virkni með þvílíku vægðarleysi við sjálfan sig að útgáfur hans bera langt af flestu því sem áður hefur verið gert á þessu sviði. Enda hefur hann aldrei vikizt undan neinni fyrirhöfn til að komast að þeirri niðurstöðu sem hægt var að fá öruggasta. Með þessum vinnubrögðum hefur Jón Helgason ekki aðeins gert sjálfur úr garði betri útgáfur en aðrir menn, heldur engu síður gefið öðrum for- dæmi, sett þeim mark að keppa að, og síðast en ekki sízt séð um að þær útgáfur sem aðrir hafa gert undir handarjaðri hans stæðust þær kröfur sem hann gerði til slíkra starfa. Og einmitt á því sviði hefur Jón Helgason unnið furðulega mikið og fórnfúst starf. Um það get ég borið af eigin raun að liann hefur leiðbeint fjölda manna um fræðistörf og útgáfur, far- ið yfir handrit þeirra, leiðrétt þau og lagfært, stundum varið til þess gífur- 107

x

Tímarit Máls og menningar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.