Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.09.1959, Page 51

Tímarit Máls og menningar - 01.09.1959, Page 51
ÍSLENZKAR FORNSÖGUR ERLENDIS stark og Esbjörn prude, eins og þeir eru kallaðir í hinu sænska kvæði. Kvæði þetta sýnir, að Orms þáttur Stóróljssonar hefur borizt til Svíþjóð- ar í einhverri mynd snemma á öldum. Talið er sennilegt, að þátturinn hafi fyrst borizt til Noregs, en þaðan hefur þetta yrkisefni komizt til Svíþjóðar. Ahrif íslenzkra fornsagna í Dan- mörku urðu harla mikil, og veldur því einkum Danasaga Saxós. Saxó Grammaticus var frægasti höfundur Dana um margar aldir; hann samdi sögu Danmerkur á latínu, geysimikið rit. Meðal áhrifa þeirrar bókar á heimsbókmenntirnar má nefna það, að Shakespeare fékk þaðan söguna af Hamlet um ýmsa milliliði, en þá sögu mun Saxó hafa þegið frá íslendingum eins og margar aðrar sögur, sem hann rekur í bók sinni. Fyrstu níu bækurnar í riti Saxós fjalla um for- sögu Danmerkur, og kennir þar ýmsra grasa. Saxó fer svofelldum orðum um Islendinga og sagnaritun þeirra: „Eigi skal iðni íslendinga liggja í þagnargildi. Vegna ófrjósemi ætt- jarðar sinnar eru þeir lausir við of- nautn, iðka jafnan hófsemi og verja löngum hverri stund lífsins til að víð- jrœgja ajrek annarra, láta mannvitið vega upp fátœktina. Það er yndi þeirra að þckkja afrek allra þjóða og jæra jmu í frásögur, og meta þeir það engu minni frægð að skýra frá hreystiverkum annarra en að vinna þau sjálfir. Hef ég kostgæfilega fært mér í nyt hina sannfróðu sagnasjóði þeirra, og hefi ég sett mikinn hluta af riti mínu saman eftir frásögn þeirra og ekki talið mér minnkun að hafa þá heimildarmenn, er ég vissi margspaka í fornum fræðum.“ Saxó er talinn hafa lokið riti sínu árið 1216, en hann mun hafa byrjað að vinna að því seint á 12. öld. Eins og kafli þessi ber ótvírætt með sér, hefur Saxó fengið mikinn fjölda sagna frá íslendingum og notað þær í riti sínu. Af þeim orðum, sem hér hafa verið skáletruð, er auðsætt, að hann hefur notað skráðar sögur. Iðni Islendinga víkur að ritstörfum, og hugmyndin að færa í frásögur benda einnig í þá átt. Þegar Saxó hefur rit- störf sín, höfðu íslendingar fengizt við sagnaritun um meira en hálfa öld. Þá höfðu íslenzkar sögur, Hrómund- ar saga og aðrar lygisögur, borizt til Noregs, og Norðurlandabúum var þá einnig kunnugt um alvarlegri sagna- ritun Islendinga. Við dönsku hirðina koma íslenzk skáld og kynna þar skáldskap sinn og aðrar íslenzkar menntir. Um svipað leyti og Saxó samdi rit sitt, fjallaði íslenzkur höf- undur um forsögu Danmerkur í Skjöldunga sögu, Hún hefur verið stórfellt rit, en nú er hún að miklu leyti glötuð. Af henni hefur varð- veitzt brot, og auk þess er hún til í latnesku ágripi, sem Arngrímur lærði gerði við lok 16. aldar. Margt er svip- að með Skjöldunga sögu og Dana- TÍMARIT máls oc mennincar 145 10

x

Tímarit Máls og menningar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.