Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.09.1959, Side 58

Tímarit Máls og menningar - 01.09.1959, Side 58
TÍMARIT MÁLS OG MENNINGAR við eða heyrt þess getið, að íslenzku- kennari skipti sér af framburði nem- enda á máli þjóðarinnar. íslenzk skáld hafa í fögrum ljóðum vegsamað móðurmálið og með réttu. Við erum af skiljanlegum ástæðum hreykin af því að hafa getað varðveitt hina fornu tungu Norðurlandaþjóða. En nú vill svo undarlega til, að þessi ást okkar á tungunni virðist einungis ná til ritaðs máls, a. m. k. ef dæma má eftir því virðingarleysi, sem hingað til hefur verið sýnt töluðu máli íslenzku. Mér er ekki kunnugt um, hvað kann að hafa verið skrafað og skrifað um íslenzkan framburð fyrr á öldum, en ekki er mér grunlaust um að það sé sáralítið. Á þessari öld má segja, að hljótt hafi verið urn þetta mál frá því Guðmundur heitinn Björnsson, land- læknir, skrifaði um þetta merka grein í Skólablaðið árið 1912, sem hann nefndi „Réttritunarheimska og fram- burðarforsmán“, og þangað til dr. Björn Guðfinnsson hóf háskólafyrir- lestur sinn um framburð og stafsetn- ingu haustið 1946. Skylt er þó að geta ] C35, að nokkrir merkir menn studdu málstað Guðmundar landlæknis og skýrðu frá sjónarmiðum sínum í þess- um efnum. Má þar nefna grein Helga Hjörvar í XII. árg. Skólablaðsins um framburðarkennslu og hljómbætur, og grein Jóhannesar L. L. Jóhannes- sonar í sama blaði um þetta efni. Þá hafði Þorsteinn Gíslason, skáld, áður einnig skrifað mjög vinsamlega grein stílaða til Guðmundar landlæknis um málið. Að vísu má segja, að grein Guð- mundar hafi aðallega fjallað um staf- setningu, en þar er þó að finna þessi athyglisverðu orð um framburð á ís- lenzku: „Ég fæ ekki betur séð, en að það væri ofurhægt að semja nákvæmar framburðarreglur og laga og fegra framburðinn að miklum mun; þessi reglubundni, fagri framburður ætti að vera sparibúningur málsins; þann- ig ætti að kenna málið í öllum skól- um og þannig ættu allir menntaðir menn að tala það — og þannig ættu allir að rita það. — Réttmœli er undirstaSa réttritunar.“ Þessi orð hins gáfaða landlæknis eru enn í fullu gildi. Vert er að vekja athygli á síðustu setningunni: „Rétt- mæli er undirstaða réttritunar.“ Við þurfum ekki að leita lengi til þess að finna rökstuðning fyrir þessari skoð- un; því hver hefur ekki einhvern tíma fengið bréf þar sem auðveldlega má lesa úr rithættinum framburðargalla höfundar, svo sem flámæli, linmæli o. s. frv. Sé því skoðun Guðmundar Björns- sonar rétt, að réttmæli sé undirstaða réttritunar, liggur í augum uppi hve réttur og fagur framburður er nauð- synlegur hverjum manni. í sambandi við vaknandi áhuga á fögrum framburði móðurmálsins er skylt að minnast hér sjóðstofnunar 152

x

Tímarit Máls og menningar

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.