Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.09.1959, Page 79

Tímarit Máls og menningar - 01.09.1959, Page 79
KÚBA 1959 Afsökun: það var nauðsynlegt að hafa sterka og stöðuga stjórn meðan Evrópustríðið stæði. Þetta var árið 1917 ... Zayas forseti (sem tók við af Meno- cal árið 1921) var friðsamur, kurteis, varkár, slægur, en þrátt fyrir það gat hann ekki umflúið deilur og árekstra. Gömlu hermennirnir úr Sjálfstæðis- stríðinu, sem voru mjög margir um þetta leyti, sameinuðust stúdentum og heiðarlegri hluta almenningsálitsins um að hleypa af stað hneykslismáli sem átti rætur sínar í spillingu stjórn- arfarsins. Dauðir og fallnir? Nei! Reyndar var gerð tilraun til uppreisn- ar, en hún olli engum blóðsúthelling- um. Eftirkomandi Zayass, Machado hershöfðingi, var sá fyrsti sem inn- leiddi á Kúbu einræði í stórum stíl, ef svo mætti að orði komast. Machado var sá fyrsti sem beitti pyndingum, uppljóstrunum, ritskoðun, morðum, heilu kerfi lögreglukúgunar, þegar þjóðin reis upp gegn framlengingu valds hans. Honum hafði verið falin stjórnin til fjögurra ára. Machado langaði til að lengja stjórnartíð sína um sex ár með því að breyta stjórnar- skránni. Orrustan var löng og ströng. En fólkið sigraði. Machado varð að hrökklast frá völdum, eins og Batista nú, og taka sér flugfari í útlegð sem honum varð ekki afturkvæmt úr. • En ekkert af þessum borgarastríð- um, ekki einu sinni hin dramatíska uppreisn gegn Machado, jafnast — að sögulegri þýðingu, pólitískri dýpt — á við stríðið gegn einræði Batista sem Fidel Castro hefur skipulagt og stjórnað. Allur samanburður verður hlægilegur. Því að í dag er um að ræða nýtt stríð, að því er tekur til her- tækninnar, en einnig með tilliti til byltingarinnihalds þess. Sigur Fidels Castros vekur furðu sökum þeirrar þrautseigju sem hefur gert þessum unga foringja kleift að ná markinu. Flugher Batista gereyddi að heita má liði hans um leið og það steig á land á austurströnd Kúbu. En Castro safn- aði saman mönnum á nýjan leik, og stofnaði vígreifan her, þrautseigan og liðugan, sem skyldi erta hinn reglu- lega her eins og flugnasveimur. Öþreytandi og ósjáanlegur flugna- sveimur sem saug dag eftir dag með bitkrókum sínum blóð þess sem virt- ist ósigranlegur og grimmur risi. Hverjir eru þeir sem mynduðu megin- stoðir hers hans? í fyrstu ungir bændur í Sierra Maestra, týndir og gleymdir í fjöllunum. Því næst ungir borgabúar, ungir stúdentar og ungir verkainenn, svertingjar og hvítir menn sem harðstjórnin þrúgaði. Þeir sem ekki vörpuðu sér út í bardagann, mynduðu framtakssaman bakvörð. Hetjuskap þeirra má bera saman við hetjuskap andspyrnunnar gegn villi- mennsku nazismans í fjölmörgum evrópskum borgum. Fyrsti lærdómurinn sem draga má 173

x

Tímarit Máls og menningar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.