Tímarit Máls og menningar - 01.03.1966, Page 12
Tímarit Aláls og menningar
engu (Much Ado about Nothing). Bindinu lýkur með ritgerð eftir þýðandann um Shake-
speare og verk hans. Enn er væntanlegt fimmta og síðasta bindið af Jóhanni Kristójer
(þ. e. a. s. IX.—X. bindi frumútgáfunnar) eftir Romain Rolland þýtt af Sigfúsi Daðasyni.
Urval ritgerða eftir Skúla Guðjónsson á Ljótunnarstöðum er í undirbúningi, en áður hefur
Heimskringla gefið út eftir hann eina bók, Bréj úr myrkri, 1961. Tvær frumsamdar ljóða-
bækur að minnsta kosti koma út á þessu ári, önnur eftir Hannes Sigfússon, bin eftir Böðv-
ar Guðmundsson; einnig eru væntanlegar þýðingar Geirs Kristjánssonar á ljóðum eftir
Majakovskí. Þá keniur út bók eftir Gunnar M. Magnúss, Ár og dagar, þættir úr baráttu-
sögu íslenzkrar alþýðu, gefnir út í tilefni fimmtíu ára afmælis Alþýðusambands íslands.
Margar fleiri bækur eru í undirbúningi, sem sumar koma á þessu ári en aðrar á hinu
næsta.
Rétt er að minna félagsmenn á að þeir njóta þeirra hlunninda að fá útgáfubækur
Heimskringlu með 25% afslætti frá bókblöðuverði, annaðhvort í afgreiðslu félagsins í
Reykjavík eða hjá umboðsmönnum úti um land.
2