Tímarit Máls og menningar - 01.03.1966, Blaðsíða 53
TVý vísmdagreln iiinan jarðfræðmnar
Viðtal við dr. Guðmund Sigvaldason jarðefnajrœðing
Sérfræðingar spretta hér npp í nýjum vísindagreinum. Einn þessara ungu vís-
indamanna er Guðmundur Sigvaldason. Hann er Reykvíkingur, f. 24. júlí 1932,
tók stúdentspróf frá Menntaskóla Reykjavíkur vorið 1952, fór síSan til háskóla-
náms í Göttingen, lagði þar stund á jarSfræSi eða nánar til tekið mineralogi
eða bergfræði og tók þaðan doktorspróf 1959, og fjallaði doktorsritgerðin um
myndbreytingu bergs á jarðhitasvæðum. Sama ár fékk Guðmundur styrk frá Vís-
indaakademíu Bandaríkjanna og dvaldist þar tvö ár, aðallega við rannsóknir á
myndbreytingum bergs á jarðhitasvæði í Nevadaeyðimörkinni, í Steamboat
Springs, kom síðan heim og lók 1961 við starfi hjá Iðnaðardeild Atvinnudeild-
ar Iíáskóians og hefur unnið þar í sérgrein sinni að jarðhitaverkefnum og auk
þess að rannsókn Dyngjufjalla og Oskju. Hann hefur m. a. kannað jarðhita í
Reykjavík, á Hengilsvæðinu og í Hveragerði. Dr. Guðmundur hefur ritað grein-
ar í bandarísk og þýzk vísindatímarit, aðallega um myndbreytingu á bergi á
jarðhitasvæðum og um eldgosin hér heima.
Að beiðni tímaritsins skýrir Guðmundur í viðtali hér á eftir frá starfi sínu
og verksviði hinnar nýju fræðigreinar. Kr. E. A.
Það er eJcki í fyrsta sinn sem ég spyr eftir jarðfrœðingi og er vísað á Iðnaðar-
deildina. Hverju má það sæla?
Um það leyti sem Atvinnudeilrj Háskólans var stofnuð voru mjög fáar vís-
indastofnanir til í landinu, en hins vegar allmargir sérfræðingar sem hvergi
höfðu vinnuaðstöðu. Atvinnudeildinni var skipt í þrjár deildir, Búnaðardeild,
Fiskideild og Iðnaðardeild sem hver um sig átti að vinna að rannsóknarstörf-
um í þágu þeirrar atvinnugreinar sem hún var kennd við. Hvað snerti Bún-
aðardeild og Fiskideild voru mjög hreinar línur um hvaða sérfræðingar þar
skyldu starfa, en í Iðnaðardeildinni voru mörkin ógleggri og þar fengu inni
sérfræðingar margra ólíkra sérgreina. Af þeim bar mest á gerlafræði, bygg-
ingarefnafræði, jarðfræði og almennum efnarannsóknum.
Þegar tímar liðu og aukinn verkefnalegur grundvöllur skapaðist fyrir hinar
ýmsu sérgreinar með vaxandi tækniþróun, klofnuðu þessar sérgreinar frá
Iðnaðardeild ein eftir aðra og sameinuðust annaðhvort skyldum stofnunum
eða urðu að sérstökum deildum, eins og byggingarefnadeildin. Þegar við Þor-
43