Tímarit Máls og menningar - 01.03.1966, Blaðsíða 91
Jónas Hallgrímsson
TVö óbtrt bréf
Til Gísla Hjálmarssonar
Akureiri. 6 Okt. 1839.
Elskulegi Gisli minn!
Hvurnig lifirðu kunníngji — læknirinn minn! Nú ætla jeg senn að sækja þig
til að fara að sitja ifir. Töluvert hef jeg nú slarkað síðan og stundum þókt
heldur subbulegt, enda verið veíkur og þá hefði nú verið gaman firir þig að
vera kominn. Jeg hef eitt að segja þjer, viltu nu ekkji ef þú hefur ekkji annað
að gjera einhvurntíma gánga upp til Forchammers og segja jeg biðji að
heilsa honum og bjóða honum að taka upp (pakke ud á dönsku) ruslið sem
jeg sendi honum; það eiga að vera 2 Kassar og 2 Kvartil og, Hrabntinnu-
böggull, þegar alt er komið til skila; enn ma(r)gt liggur hjer eptir híngað og
þángað, sem eg næ ekkji til sem stendur; Jeg bið þig einkum um þetta af þvi
jeg þegar jeg bjó sumt út — þetta norðanað, bjóst við að taka það upp sjálf-
ur og hef þess-vegna ruslað af Etiqvetterne, og sumstaðar vanta þær. í tveim
pokum til að minda í námakvartilinu, bundnum saman, er sinishorn af
Brennisteininum úr Kröblu, í öðrum úr köldum nám og öðrum úr heitum,
sem jeg man að ekkjert merkji filgjir. Heldurðu þu gjetir selt andsk(otans)
unif(ormið) mitt? jeg ætla þá að biðja þig að fá Prosowskij 4 dali — jeg
ætla honum það í rentur vesælíng —og helv(ítið) þarna ála Pjetursborg
Hansen á lika hjá mjer 4 d(ali) eða þarum bil, og dóninn þarna í húðinni
hjá Ládöll ef hann er þar enn, bróðir tóbaksstelpunar —- eitthvað 2. dágóð
Commissión kunningji; berðu þig að Ijúka henni af i kjirþei.
Jeg hef ætlað að skrifa miklu fleirum enn tíminn leifði mjer, heilsaðu
þeim öllum og segðu þeir muni sjá snáða lifandi þó seinna sje — heilsaðu
Páli og Jóni, ef jeg verð sá fantur að skrifa þeim ekkji neitt og Oddgjeri
mínum, hvurnig líður honum að attan? og so frammveigis. Það er satt þarna
hefurðu gjimstein ef þú vilt láta slipa þjer stein í hríng eða brjóstnál, og
vertu nú sæll! .. . . ..
Þmn elskandi
JHallgrimsson.
6 TMM
81