Tímarit Máls og menningar - 01.03.1966, Blaðsíða 56
Tímaril Máls og menningar
mönnum tækifæri til framhaldsrannsókna að doktorsprófi loknu. Hægt er að
helga sig óhugamálum sínum án nokkurra kvaða, og eina skilyrðið sem styrk-
veitingunni fylgdi var, að eftir tvö ár varð styrkþegi að yfirgefa Bandaríkin
og mátti ekki stunda þar vinnu næstu tvö ár þar ó eftir. Þetta skilyrði var
sett í þeim tilgangi að menn freistuðust ekki til að setjast að i Bandaríkjunum
og heimalandið hefði einhver not af þeirri reynslu, sem þar var aflað.
Mér þótti eðlilegt að halda áfram við jarðhitarannsóknirnar og fór því til
helzta jarðhitamanns þar vestra, Don E. White, en hann er við jarðfræðistofn-
un ríkisins, U.S. Geological Survey. Ég tók með mér verkefni að heiman, bor-
kjarna frá Reykjavík og Hveragerði og vann að nokkru leyti úr því efni þar
vestra. Ennfremur vann ég úr borkjörnum frá hverasvæði í Nevada, Steam-
boat Springs, í samvinnu við þennan bandarikjamann.
HvaS hejur Nevadaeyðimörkin til síns ágœtis? Og hver var helzti árangur
aj rannsóknum þar.
I Nevada dvaldi ég ekki nema stuttan tíma, því starfið fór allt fram í rann-
sóknarstofum jarðfræðistofnunarinnar í Menlo Park, Kaliforníu. Sá staður
hefur hins vegar mjög margt til síns ágætis, milda veðráttu, prýðis fólk og
ógæta vinnuaðstöðu.
Eins og ég sagði áðan var starfið í Göttingen fólgið í því að kanna mynd-
breytingar við liveri á yfirborði jarðhitasvæða. í Menlo Park byrjaði ég að
athuga hvað gerist undir yfirborðinu með því að skoða sýnishorn af bor-
kjörnum. Steamboat Springs eru rétt austan við Sierra Nevada fjallgarðinn
og berggrunnurinn er úr granodioriti, en það er bergtegund, sem líkist gran-
iti. Hér er því um allt aðra bergtegund að ræða en í berggrunni íslenzkra
jarðhitasvæða og efnaskipti milli heita vatnsins og bergsins eru því með öðr-
um hætti en hér á landi. Ég lagði einkum áherzlu á að rannsaka samsetningu
þeirra steintegunda í berginu, sem líklegastar eru til að hafa áhrif á efnasam-
setningu vatnsins en það eru svokölluð phyllosiliköt. Það er erfitt að skýra frá
árangri þessara rannsókna í stuttu máli, en mér er óhætt að segja að niður-
stöðurnar hafi stuðlað að betri skilningi á efnasamsetningu hveravatns, eink-
um með tilliti til breytinga sem verða á efnainnihaldi vatnsins við rennsli um
jarðlög á leið til yfirborðsins. Ennfremur gáfu samanburðarathuganir á bor-
kjörnunum frá íslandi til kynna að aðrar reglur gilda um efnaskipti milli
vatns og bergs hér á landi en nokkurs staðar annars þar sem þessi mál hafa
verið könnuð, og ástæðan er sú að jarðhiti er víðast í nánum tengslum við
líparitsvæði en hér er mikið um jarðhita á basaltsvæðum.
46