Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.03.1966, Page 15

Tímarit Máls og menningar - 01.03.1966, Page 15
Bókmenntaárið 1965 Ætla rithöfundarnir nú aftur að láta til sín taka með þjóðinni? Og hef ég þá fremst í huga þá ungu höfunda sem ganga harðast fram fyrir skjöldu í ádeil- unni: Erling Halldórsson, Ingimar Erlend og Jóhannes Helga. í rauninni mætti álykta að hér sé tekið upp aftur merki þjóðfélagsádeil- unnar frá þriðja og fjórða tugi aldarinnar, en eins og gefur að skilja á öðrum grundvelli við nýjar þj óðfélagslegar aðstæður. í Bréfi til Láru heindist höfuð- ádeilan, er sárast sveið undan, gegn sjálfu auðvaldsþjóðfélaginu og máttar- stoðum þess jafnhliða ljósum boðskap um sósíalisma sem hinni einu stefnu er vit væri í og knúin fram af sögulegri nauðsyn. Hið sama inntak var í skáld- sögum Halldórs Kiljans og í öðrum verkum „rauðra penna“ á fjórða tugi ald- arinnar. Þjóðfélagsbarátta þessara höfunda hafði í upphafi byltingarsinnað markmið, en snerist brátt af sögulegum ástæðum yfir í samfylkingu gegn fas- isma og styrjaldaráformum hans. Jafn þjóðleg sem þessi skáld voru stóðu þau á alþjóðlegum grundvelli með sögulegar víddir og framtíðarútsýn. Síðar ein- beittu þessir höfundar um skeið ádeilu sinni að herstöðvasamningum og her- námspostulum og tóku á myrkratímum kalda striðsins upp haráttu fyrir friði og fyrir að rétta við hlut og mannorð íslendinga út á við. Bréf til Láru var ekki skáldrit hvorki að uppistöðu né tilætlun heldur ódul- búin þjóðfélagsádeila. Hinsvegar varð Bréfið ósjálfrátt eða af innra eðli með margþættu skáldlegu ívafi, vegna stílsnilldar sinnar, frásagnargleði, auga höf- undar fyrir skopi, spaugi og gamansemi, glitrandi tærleika málsins og hins heillandi tvísæis. Þessi skáldskapareinkenni sem flæða út yfir ádeiluna í Bréfi til Láru gerðu hvorttveggja, að magna hana og draga úr ádeiluþunganum. Niðurstaðan varð klassiskt verk og einstætt í íslenzkum bókmenntum, ferskt viðhorf, ný sjón á tilveruna, nýr stfll. Síðan kom Halldór Kiljan og gerði hina þjóðfélagslegu ádeiluskáldsögu að afli og sannkölluðu stórveldi með þjóðinni og skóp hverja persónuna af annarri sem urðu tákn nýrra viðhorfa, Sölku Völku, Bjart í Sumarhúsum, Ástu Sóllilju, Ólaf Kárason, Örn ÍUfar og loks Jón Hreggviðsson er spurði um böðulinn: Drap ég hann? Eða drap ég hann ekki? . . . Ég vona minn skapari gefi ég hafi drepið hann. f Ijósi þessa er ástæða til að spyrja: Hver eru hin ungu skáld eða rithöf- undar, hvað ætlast þeir fyrir og hvers eðlis er ádeila þeirra? Eru þeir hinir nýju arftakar „rauðra penna“ er taka upp byltingarfánann og hefja nýja sókn? Við höfum öðru hvoru heyrt erlendis frá um unga reiða menn sem skaut upp eins og flugeldum er lýsa andartak, skaut upp úr fátækt eftirstríðs- áranna, urðu bókmenntastjörnur á einum degi, stórríkir eftir fyrstu sigra sína, þögnuðu og voru teknir í sátt við þjóðfélagið. Þetta og margt fleira sem bitnr 5
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116

x

Tímarit Máls og menningar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.