Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.03.1966, Page 25

Tímarit Máls og menningar - 01.03.1966, Page 25
Bókmenntaárið 1965 bremiur í gasoínum, „brennur á sál og líkama", lifir kjarnorkubruna jarð- arinnar. Lesendur fá litla hugmynd um þann sem sagan er af, nema allt kemur fram við hann. Hann er skáld og Maður, sá sem finnur til og verður af þeim sökum að lifa allar þjáningar, og einmitt af því að hann er skáld og finnur til er hann sannur maður sem allt leitar til gotl og illt, og hann er sá einn sem lifir af, ásamt jökulblómi, þegar jörðin er brunnin í eldi. Fyrir þann hæfileika sinn að finna til og þjást skynjar hann heiminn. Og þeim sem skynjar heim nútímans með helsprengjum og auðvaldi af næmleika skálds hlýtur að vera innanhrjósts sem í pyndingarklefa: sú er niðurstaðan. Og þannig skoðuð er sagan logheit ádeila. 5 lngimar Erlendur Sigurðsson haslar skáldsögu sinni völl með titli hennar, Borgarlíf. I upphafi bókar bregður hann upp mynd af tólfhæða byggingu, nýrisinni á rústum gamals húss í miðbæ borgarinnar. Hið gamla brann til grunna, allt nema stálmaðurinn, sem er í senn ímynd forneskju og verður eins og tákn hinnar nýju byggingar eða andinn sem fylgir henni. Það fer ekki milli mála að hér er risin höll braskaravaldsins á íslandi, ímynd hins nýja yfirstéttar- og hernámsþjóðfélags, auðvaldshöllin, sú marggylta. Hér í þessari borg eru allar rætur slitnar frá náttúrunni, maðurinn orðinn „svikari við jörðina“, algerlega rótslitinn úr sveitinni. Borgarlífið er reist á gerólíkum grunni. Höfuðpersónan Logi er í sveit þegar sagan hefst, en fæddur borgar- búi, reyndar í gamla húsinu af fátæku foreldri, móðir hans hafði hrakizt í bragga. Hann á enn djúpar rætur í sveitinni, unir sér þar, finnst hann eiga þar heima. En honum er ljóst að í borginni verður hann að heyja baráttu sína og hann sækir um starf í sjálfri háborg braskaravaldsins við höfuðblað borgarinnar, sem nefnt er í sögunni bara Blaðið. Hann veit að hann er „að fara í heimilisleysið“ en vill eiga þátt í „heimsstríði mannssálarinnar“. Ekki hundur dillar rófu þegar hann fer úr sveitinni. Sem borgarbúi er hann sak- bitinn, finnst hann hafa höggvið á ræturnar sem liggja niður í moldina. Hvers leitar þessi ungi maður, höfuðpersóna Borgarlífs? Hann leitar að fótfestu í borginni, skilningi á eðli hennar, að einhverju sem hald sé í, hann er í leit að sjálfum sér og mannlegum verðmætum í hinu borgaralega þjóð- félagi. Umsókn Loga um blaðamennskustarf er alger tilviljun, hann sér auglýsingu 15
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116

x

Tímarit Máls og menningar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.