Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.03.1966, Page 42

Tímarit Máls og menningar - 01.03.1966, Page 42
Tímarit Máls og menningar Taflan AM732etc færir sönnur á sig sem islenskur búshlutur af fleiru en þeirri staðreynd að hún eða önnur álíka hefur verið Ara nærtækust amboða; gerð hennar að öðru leyti, snjöil og einföld, er sérstök í sinni röð, svo eingin önnur tafla af þessari gerð hefur fundist í evrópulöndum, og reyndar hvergi. Það er og eitt fyrir sig að þessi íslenska tafla notar tugakerfi í tímatalsút- reikníngi, sem þá var lítt kunnugt í Evrópu, en tíðkaðist með serkjum sem í þann tíð voru mestir tímatalsfræðíngar. Og með því íslendíngar hafa á þessari miklu mentaöld sögu sinnar, 12. öldinni, í nokkrum atriðum öðrum tekið við lærdómi beint frá serkjum, svo sem kunnugt er af rímtalsrannsókn- um Beckmans, þarámeðal um það er snertir útreikníng á túnglöldum, þá væri ráð að líta til araba í leit að annarri slíkri töflu. Svo varð Beckman himinlifandi að uppgötva þetta einfalda en hálærða íslenska plagg í tíma- talsreikníngi, að hann hikaði ekki við sem tímatalsfræðíngur að telja skinn- blaðið AM 732a, VII 4° ekki aðeins elst blaða í Árnasafni, heldur merki- legast plagg sem í því safni yrði fundið. Beckman lét fyrir laungu prenta talbyrðínginn í ritum sínum um íslenska rímfræði forna (þó ekki í eftirstúngu skrifleturs, facsimile), en láðist að draga af honum víðtækar ályktanir, sem tilefni var til, virðist ekki hafa haft snjallræði til að draga fram þau sér- kenni plaggsins sem leiða að óvæntum niðurstöðum. Framtil þessa hafa íslenskir fræðimenn ekki svo kunnugt sé talið þessvert að gaumgæfa þetta plagg. Hefðu þeir þó komist hjá margri skakkri ályktun og graut í hugsun ef þeir hefðu látið svo lítið að leiða augum þessa höfuð- heimild um útreikníng tímatals í elstu sagnfræði íslenskri. Afturámóti samdi Jón prófessor Jóhannesson frásögn í Skírni 1952, að því er hann segir eftir ábendíngu Turville-Peters hins enska miðaldafræðíngs, um tímatal Gerland- usar sem inn var leitt á íslandi fyrir miðja tólftu öld, eða eigi allaungu eftir að Ari ritaði. Jón Jóhannesson var í því sérstakur að hann skrifaði oft litlar greinar þannig að þær komu flatt uppá menn eða kollvörpuðu eldri hug- myndum þeirra af sökum þess staðreyndaauðs sem honum var tiltækur um- fram flesta menn. í skírnisgrein sinni útskýrir Jón ruglíng sem varð á tíma- tali í íslenskum bókmentum um lángt skeið, og íslendíngum hefur á síðari tímum verið með öllu óljóst af hverjum rótum er runninn. Svo liðtækur tímatalsfræðíngur sem Guðbrandur Vigfússon komst aldrei til botns í þessu og kallaði þetta mýstík í íslensku tímatali. Sannleikurinn er sá að forn fræði íslensk hljóta að verða íslendíngum mýstík á mismunandi háu stigi meðan þeir rekja fræði sín innaní lokuðu kafseli líku geimfari sem snýst í hríngi einhversstaðar fyrir utan heiminn. íslensk fræði eru því aðeins mýstísk að 32
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116

x

Tímarit Máls og menningar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.