Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.03.1966, Page 51

Tímarit Máls og menningar - 01.03.1966, Page 51
Timatalsrabb komu á gáng, og stendur í einni landnámugerð, og seinni tíma fræðimenn íslenskir hafa hvomað í sig einsog flest það sem er nógu lygilegt; og hún er sú að þessi þýski Eadmundur einglakonúngur píslarvottur og dýrlíngur hafi verið afi konunnar á Skeggjastöðum í Mosfellssveit hér fyrir ofan hálsinn. Nú veit ég því miður ekki mart um Eadmund fyrir utan það lítið sem mig rámar í úr forvitnileiðángri sem ég gerði í erlent bókasafn eitt sinn á vit þessa frumbyggja íslensks tímatals. Bókin sem ég þekki um hann er sú sama sem Hermann Pálsson vitnar til í skemtilegri ritgerð sinni um konúnginn í Skírni 1957: Memorials of St. Edmund’s Abbey I, ed. by Thomas Arnold, London 1890. Ég ætlaði á dögunum að finna þessar ævir Eadmundar á Lands- bókasafni til að styrkja veikar endurminníngar mínar um konúnginn úr fyrra hundavaðslestri. En þá sannaðist sem oftar að íslenskir fræðimenn hafa held- ur ótrú á að sánka að sér fróðleik úr evrópskri miðaldasögu í sambandi við forn fræði íslensk; og þó þeir hafi viljað setja niður afkomendur Eadmundar á efstum fjallabæum Mosfellshrepps hafa þeir aldrei viljað láta sögu hans koma í landið. Ég verð því að hafa ritgerð Hermanns mér til upprifjunar og er þar reyndar ekki í kot vísað. Hermann hyggur að saga Eadmundar hafi verið til á íslensku á undan Ara og hafi hann verið bók þessari kunnur; virð- ist Hermann aðhyllast þá kenníngu að hér hafi verið uppi á undan Ara önnur ritöld íslensk flestum ókunn nema höfundi málfræðiritgerðar Snorra-Eddu, sem tilgreinir þó aungva bók. Þannig ætti Eadmundur að hafa átt greiðan gáng úr „þýðíngum helgum“ inn í sagnfræði íslendínga: muni þó einkum og sérílagi hérlend sérviska, „arfsögn íslensk“ segir Hermann, hafa ráðið því að Ari veiddi upp þennan karl, sem reyndar hafi verið frændi hans! Mér er samt nær að halda að fróðleik um Eadmund einglakonúng, hvern sem væri, sannan eða loginn, sé varlegt að flokka með „íslenskum arfsögnum“ (hver fjárinn sem það er annars) fremur en tam. fróðleik sem við íslendíngar höfum á þessari öld um Elísabetu I. eða Viktoríu drotníngu; — mundi þó enn fjarstæðukendara ef drotníngar þessar enskar hefðu verið myrtar af dön- um einsog Eadmundur var. Jafnvel Ólafur Haraldsson er nær því að vera „ís- lensk arfsögn“ en Eadmundur hefur verið, því einsog ég sagði áðan væri auð- velt að halda því fram að hugmyndir um konúngdóm Ólafs Haraldssonar í Noregi væru, ef ekki íslensk bábilja, þá að minsta kosti formlega séð reistar á einhverjum misskilníngi. Eadmundur konúngur var afturámóti margfrægur í öllum þeim löndum þángað sem íslendíngar sóttu mentun sína á fyrstum öld- um íslenskrar kristni; en í þeim löndum var Ólafur Haraldsson ókunnur. Dan- ir tignuðu Eadmund í mörg hundruð ár eftir að þeir drápu hann, og virðast 41
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116

x

Tímarit Máls og menningar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.