Tímarit Máls og menningar - 01.03.1966, Page 55
Ný vísindagrein innan jarðfrœðinnar
legu einingar og hvernig efnin flytjast á milli. Þetta er því að verulegum hluta
efnafræði með jarðfræði og bergfræði sem bakgrunn.
Um það leyti sem ég hóf nám í Göttingen hafði jarðefnafræði hvergi hlotið
viðurkenningu á þann hátt að til væru sérstakar háskóladeildir starfandi í
þessari grein. En síðan 1955 hafa risið jarðefnafræðideildir við flesta meiri-
háttar háskóla.
Svo að þessi sérgrein þín er í rauninni nýgrœðingur í vísindunum?
Það er of mikið sagt að hún sé nýgræðingur í vísindunum, því að menn
hafa haft áhuga á efnasamsetningu jarðar og gert mælingar á efnainnihaldi
hergtegunda, vatns og lofts, um langan tíma. En sem sérgrein innan jarðvís-
indanna hafa þessi fræði tekið einna stórstígustum framförum á seinni árum
og kemur þar margt til: í fyrsta lagi var lagður fræðilegur grundvöllur á sviði
efnafræði og kj ameðlisfræði á fyrri hluta þessarar aldar og auk þess hefur
þróun á sviði efnagreininga tekið stökkbreytinguni á síðustu tíu árum.
Þú iðrast sem sagt ekki eftir að hafa tekið þessa stefnu við námið?
Síður en svo. Ég hef haft mikla ánægju af starfi mínu og á íslandi bíða ótal
verkefni óleyst á þessu sviði eins og í öðrum greinum jarðvísinda.
Hvenœr laukstu námi, og um hvað var doktorsritgerð þín?
Ég lauk námi í febrúar 1959. Ritgerðin fjallaði um myndbreytingar sem
verða á bergi við hverasuðu. Hveravatnið er hreytilegt að efnasamsetningu
og sýrustigi og ritgerðin byggist á því að finna hvaða efnasambönd bergsins
eru í jafnvægi við hveravatn með breytilegu sýrustigi. Ennfremur var gerð
allnákvæm grein fyrir því hvaða efni leystust úr berginu og bærust á brott
með vatninu og eins hvaða efni hveravatnið lætur eftir í berginu. Þessi athug-
un tekur aðeins til þeirra efnabreytinga sem verða á yfirborði jarðhitasvæð-
anna en af henni má hafa tvenns konar gagn. í fyrsta lagi er sýnt frain á, að
allt aðrar steintegundir myndast í mjög súru vatni en í basiskum upplausnum
og því hægt að segja að nokkru til um sýrustig þeirra upplausna sein léku um
forn myndbreytt berglög og í öðru lagi fæst betri skilningur á efnaskiptum
milli heita vatnsins og bergsins og skýring á vissum þáttum í efnasamsetningu
hveravatns.
Frá Göttingen fórslu til Bandaríkjanna. Var það til jramhaldsnáms eða
sérstakra rannsóknarstarfa?
Ég var svo heppinn að fá mjög góðan styrk frá bandarísku vísindaaka-
demíunni til tveggja ára dvalar í U.S.A. Þessir styrkir eru veittir til að gefa
45