Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.03.1966, Page 57

Tímarit Máls og menningar - 01.03.1966, Page 57
Ný vísindagrein innan jarðfrœðinnar Og síðan komstu heim? Þó að dvölin í Bandaríkjunum hafi verið mjög ánægjuleg þá er ekki því að neita, að fjölskyldan hjálpaðist öll að við að telja dagana seinna árið. Við komum heim í byrjun október 1961 og ég gekk þá strax inn í starf við Iðnað- ardeild. Það voru alimikil viðbrigði að koma beint frá rannsóknarstofu þar sem öll nýjustu tæki voru fyrir hendi og byrja að vinna á Iðnaðardeild þar sem ekkert var til utan það frumstæðasta, sem hægt var að komast af með. Þó var þetta eini staðurinn sem bauð upp á nokkra möguleika til áframhald- andi starfs á sviði jarðefnafræði og enginn skortur var á verkefnum. Og hver haja þá verið helztu verkejni þín? Efst á lista verð ég að setja það verkefni, sem hefur kostað mesta fyrirhöfn og tíma, en það er að skapa starfsaðstöðu hér heima. Eins og ég gat um áðan var aðstaða til jarðefnafræðilegra rannsókna mjög af skornum skammti, og því ekki nema um tvennt að velja, annaðhvort að hverfa úr landi og leita vinnu annars staðar eða reyna að skapa skilyrði til þessarar starfsemi. Segja má að uppbygging þessarar starfsemi hafi gengið vonum framar. Ég hef fengið styrki til tækjakaupa frá Vísindasjóði og frá vísindanefnd At- lantshafsbandalagsins, og strax eftir að skriður komst á þessa starfsemi feng- um við meiriháttar fjárframlög frá þeim aðilum, sem fást við rannsóknir og virkjun á jarðhita. Þessu fé hefur að miklu leyti verið varið til kaupa á nýj- ustu tækjum til jarðefnafræðirannsókna og nú er svo komið, að við Iðnaðar- deild er aðstaða, sem jafnast á við rannsóknarstofur sem hafa með höndum svipuð verkefni erlendis. Jafnframt þessu hef ég reynt að vinna að öðrum verkefnum, en það er fyrst núna í ár, sem hægt er að segja að aðstaðan sé eins og bezt verði á kosið, eftir að efnagreiningasalur Iðnaðardeildar hefur verið algjörlega endur- nýjaður. Nokkrum dögum eftir að ég kom heim frá U.S.A. byrjaði Askja að gjósa og það féll í minn hlut að gera grein fyrir gosefnunum. Einhvernveginn æxl- aðist það svo, að úr þessu varð meiriháttar rannsóknaráætlun um berg- fræði og jarðfræði Dyngjufjalla.Ætlunin er að kortleggja þetta svæði og gera grein fyrir bergfræði þess. Ég hef dvalið í Odáðahrauni um lengri eða skemmri tíma í tvö sumur og vonast til að verja meiri tíma til þessa verkefnis í framtíðinni en hingað til. Jarðefnafræði jarðhitasvæðanna er annað verkefni, sem unnið hefur verið að. Ég hef einkum reynt að gera mér grein fyrir efnafræði heita vatnsins út 47
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116

x

Tímarit Máls og menningar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.