Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.03.1966, Page 66

Tímarit Máls og menningar - 01.03.1966, Page 66
Tímarit Máls og menningar Það var ys og þys við höfnina, menn með stampa á bílum, ymur í vélum, köll, hávaði. Bátarnir lágu hver utan á öðrum og reyndu á landfestar. Það verður einhver skælingur, sagði formaðurinn þegar þeir höfðu hellt uppá í lúgarnum. Maður kastar þessu þá í leirinn ef ekki vill betur til. Ann- ars var kominn grimmur fiskur á Víkinni. Austfirðingarnir voru að hell’onum þar í sig. Það yrði sosum ekki amalegt að lensa þangað austur, líklegast lúshægur þar í vestanáttinni. Hann skvampaði í sig hverri könnunni á fætur annari af biksvörtu og næstum hnausþykku kaffinu með molasykri og var í essinu sínu. 3 Það var róið um nóttina. Karl Jóhann hafði ekki sofnað þegar klossaþrammið barst til hans utan af götunni og kallinn stóð úlpuklæddur og búralegur á gólfinu. Ræs strákar! Þeir þutu framúr allir utan unglingurinn. Hann rótaði sér ekki fyrr en stýrsi gekk í skrokk honum, sat drjúga stund framaná, drungalegur og mjó- kríkaður og starði óglaður í sementsrykið á gólfinu. Áttu ekkert föðurland, strákur? Þú króknar í þessum stuttbrókarhráka. Nei, unglingurinn átti ekkert föðurland, hafði ofnæmi fyrir föðurlöndum. Það er kannske betra að krókna, sagði stýrsi. Það vissi unglingurinn ekki, en hann kærði sig ekki um ofnæmi. Hann gekk á með éljum, söng og spilaði í húsaþökum og götuljósin hurfu í hörðustu hryðjunum. Það verður ekkert farið, sagði unglingurinn og gekk andfætis í éljunum. Þetta verður ekki annað en narr. Það er ekki snefill af sjóveðri. Ekkert mjálm, sagði stýrsi og hafði forystuna til sjávar. Hann lægir með birtunni. Það var kaffipartí í lúgarnum, vomur í köllum og úrsynningurinn átti ekki upp á háborðið. Nei, maður er bezt geymdur í bælinu hjá kellingunni, sagði einn. Það kemur ekkert út úr svona sjóveðrum. 0, ætli þau yrðu ekki fá tonnin manns ef maður ætti alltaf að dorga í bæl- inu. Smeykur er ég um það. Þeir tóku í sama streng hinir. Það er bezt að doka eftir veðrinu. Ef hann verður eitthvað vægari, skellir maður sér í’ann. Kastar þessu í tindabikkjuna ef ekki vill betur til. 56
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116

x

Tímarit Máls og menningar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.