Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.03.1966, Page 85

Tímarit Máls og menningar - 01.03.1966, Page 85
Tiu á Höjðanum Nú fer að vora heima, sagði hún. Jæja, sagði hann áhugalaus, þvi hann hafði hvergi heimilisfestu og kunni ekki skil vors og vetrar. Um þetta leyti er allt orðið grænt, sagði hún. Og eftir mánaðamótin fara blessuð lömbin að fæðast. Það var mikil blíða og þrá í augum hennar. Þegar þau komu í bæinn aftur höfðu strákarnir orðið sér úti um flösku og sátu við drykkju í lúgarnum. Hvað var annað hægt að gera á þessum leiðindadegi, engin hola opin, jarðarfararandlit á flestum, fánar i hálfa stöng. Hvað kom það þeim við þó eitthvert mannkerti úti í löndum hefði verið krossfestur vegna trúar sinnar fyrir mörg hundruð árum? Var málstaður hans nokkuð bættari þó þeir færu að gera sér upp sorg? Var ekki nóg hræsnin í heiminum samt? Afhverju þurfti hann að láta þessa hunda krossfesta sig, hann, sem gat lífgað við dauða, lægt hafrót, gefið blindum sýn, lömuðum mátt sinn? Hann hefði ekki þurft annað en veifa hendi sinni. En hann gerði ekkert, lét hand- taka sig, hrækja á sig, berja sig. Hann hlaut að hafa verið einhver veimiltíta? Stúlkunni leizt ekki á blikuna. Voðalegir menn eru þetta. Hún herti takið um arm hans. Farðu ekki til þeirra. En hann var orðinn leiður á labbinu, leiður á ömurleika dagsins, sleit sig næstum af henni, sagði bless og stökk um borð. 15 Laugardagsmorgunninn var þrunginn þynnku,timburmönnum,drunga. Það var þykk hafalda, þungur dráttur, bunkuð net. Þeir tóku ekki á sér heilum, hvorki í úrgreiðslu, né á garði og flesl fór úrhendis. Alkóhólið síaðist dræmt úr kroppnum eins og svitaholurnar væru stíflaðar og höfðinu lá við klofnun. Helvítis fár. En trossurnar voru tíndar upp, pældar í djúpið aftur þrátt fyrir alkóhól og timbursmíðar. Það var tekið að elda þegar þeir komu að, löndun í algleymingi, fiskur í kösum úti sem inni og bátar enn að koma eins og fjalir á sjónum. 75
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116

x

Tímarit Máls og menningar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.