Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.03.1966, Page 105

Tímarit Máls og menningar - 01.03.1966, Page 105
Elio Vittorini sem hún beitir. Víst hefur hún prédikað, kennt, og hún hefur mótað nostursamlega lögmál sín og mælikvarða, hún hefur fund- ið meginlönd og búið til vélar, en aldrei hefur menningin sameinazt þjóðfélaginu, aldrei ríkt með þjóðfélaginu og aldrei hef- ur hún hajt yfir hersveitum að ráða í þágu þjóðfélagsins. Hvað er þá á bak við þau lögmál og mælikvarða sem menningin hef- ur búið sér til? Það er þjáning mannanna í þjóðfélaginu. Því að mennirnir hafa þjáðst og þjást enn í þjóðfélaginu. En hvað gerir menningin svo fyrir mennina? Hún reynir að hugga þá. En þar sem menningin hefur ekki gert annað en hafa hughreystandi áhrif, hefur henni ekki tekizt að koma í veg fyrir neina af ógnum fasismans. Ifún lét sig engu skipta þjóðfélagsleg öfl sem hefðu getað stöðvað valdatöku fasismans bæði á Italíu og í Þýzkalandi; menningin hafði ekki yfir neinum fallbyssum, flugvélum eða skriðdrekum að ráða til þess að koma í veg fyrir Ethiopiu-ævintýrið, sigur fasista á Spáni, innlimun Austurríkis eða Miin- chensáttmálann. Það er því einmitt hennar sök, að hin þjóðfélagslegu öfl, fallbyssur, flugvélar og skriðdrekar skyldu ekki vinna í þágu menningarinnar. Þjóðfélagið getur aldrei orðið menning- arlegt meðan menningin gegnir ekki sínum þjóðfélagslegu skyldum. Og menningin verður aldrei þjóðfélagsleg, meðan hún kemur sér ætíð hjá því, að taka þátt í þjóðfélagsbaráttunni; meðan höfuðreglur hennar miða aðeins að því að veita hugg- un; reglur sem standa eilíflega, án þess að hugsað sé fyrir tímabærum breytingum. Meðan menningin er ekki áþrcifanlegur veruleiki, iifandi eins og þjóðfélagið sjálft er lifandi, þá verður hún ekki þjóðfélags- leg. Mun menningin alltaf láta sér nægja að hugga mennina, en aldrei gera sér ljóst að þeir þurfa á vemd hennar að halda gegn hinum eilífu þjáningum? Þessi úrelta menning okkar verður að breytast í þá menningu sem kemur í veg fyrir hvers konar þjáningar og útrýmir þeim; sem hjálpar okkur til að vinna gegn kúgun og þrælkun; þannig er menningin ný og end- urbætt og þannig vinnur hún í þágu manns- ins. í tálmyndum menningar sinnar hefur ítalska þjóðin orðið að h'ða mikið. Hvaða ítali kannast ekki við auðmýkingu hins vanmáttuga, eða hina máttvana reiði? Og þrátt fyrir það ætlum við okkur að halda áfram að feta í fótspor manna sem enn þann dag í dag kenna sig við Thomas Mann eða Benedetto Croce? Ég sný mér til allra ítalskra menntamanna sem þekkja fasismann af eigin raun. Hér á ég ekki að- eins við marxista, heldur einnig hugsjóna- menn, katólska menn, dulspekinga. Ekki geta rökin sem liggja fyrir hugsjónum eða katólskri trú, verið á móti því að umbreyta menningunni svo að hún verði fær ttm að berjast gegn ltungri og þjáningu. Umhyggja fyrir brauði og vinnu gefttr líka andlegan arð. Idins vegar hefur það lítil áhrif út á við að sinna ekki neinu öðru en „andanum“ og gleyma alveg efnishlið lífsins, því að einmitt það gerir yfirvöldttn- um auðvelt að drottna í „andlegum“ málum mannsins. Spor í átt til nýrrar öflugrar menningar, sem yrði manninum til vemdar en ekki lengur aðeins til hughreystingar; ekki get- ttr það verið síður áhugamál hugsjóna- mönnttm og katólskum en okkur!" Ragnhildur Óskarsdóttir. 95
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116

x

Tímarit Máls og menningar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.