Tímarit Máls og menningar - 01.10.1969, Page 61
Minn trúnaður er ykkar trúnaður
með ljóðerfð þjóðarinnar. En hugrenningin er uggandi, og minning Þor-
steins Erlingssonar er að „sá hefur feingið maklega ráðníngu“:
Um þaíf vitnar staung á burstinni —
bonanza
roadhouse
og copper sky.
Svo er fyrir a?f þakka
þeim sem út híngað voru sendir
aff stríffa
fyrir lífsins kórónu.
Hér verða myndhvörfin á ný alveg skýr og tvímælalaus. Hin „auknu þæg-
indi“, „lífsins kóróna“, sem eru hið raunverulega tilefni kvæðisins eru þann-
ig sjónvarpsstöð bandaríska setuliðsins á Keflavíkurflugvelli og önnur skyld
fyrirbæri í íslensku þjóðlífi nútímans, en sjónvarpsstöðin hóf einmitt aukn-
ar útsendingar sínar til íslendinga um það leyti er kvæðið varð til. Þetta
verður skáldinu tilefni til að hrópa vörnuð til þjóðar sinnar, og það talar
máli þjóðernistilfinningarinnar, ekki síst vegna þess hversu margir íslend-
ingar tóku fagnaðinum feginsamlega. Sá biturleiki er fram kom þegar fjall-
að var um hina „maklegu ráðníngu“ Þorsteins Erlingssonar, verður að köldu
háði í lok þessa kafla kvæðisins:
Sér grefur gröf
En um leið eru þessi orð vörnuður til þjóðarinnar og vísa þannig til tveggja
átta, og eftir þessa viðvörun hefst lokakafli kvæðisins, en um hann verður
síðar fjallað.
Myndhvörf Þorsteins frá Hamri hafa þroskast og tekið framförum með
hverri nýrri ljóðabók hans og þeirra gætir enn fremur miklu meir í síðari
bókunum en hinni fyrstu. Úr fyrstu bókinni / svörtum kufli má þó nefna
ýmis dæmi svo sem úr kvæðinu „Gunnlaugur ormstunga á förum“. Þar lýkur
fyrsta erindinu á viðlíkingu feigðaróðsins við fugl er flögrar „berg af bergi“.
Og næsta erindi spinnur þessa líkingu upp í myndhvörf um leið og endur-
tekning bergsins víkur fyrir hringnum:
Mín löngun vefst og þrengist hring í hring
um náð sem næst þó hvergi (bls. 33).
í næstu bók Tannfé handa nýjum heimi verður stjarna skáldinu að auga
svefngengils:
155